Samningur undirritaður um framkvæmd við Faxabraut, endurgerð og grjótvörn
Þriðjudaginn 26. maí sl. var skrifað undir verksamning við Borgarverk ehf. um endurgerð á Faxabrautinni og grjótvörn meðfram henni. Alls bárust fjögur tilboð í verkið og þar voru Borgarverks menn hlutskarpastir en tilboð þeirra var uppá 467 m.kr eða 87,9% af áætluðum verktakakostnaði. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar, Veitna og Mílu og var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkefnið sem um ræðir er stór þáttur til að uppbygging á Sementsreitnum geti hafist en hækka þarf yfirborð götunnar umtalsvert og laga sjóvarnargarð áður til að tryggja öryggi fyrir uppbyggingu svæðisins.
Helstu magntölur í verkinu eru:
| Rif steypu í vegum og stéttum | 10.000 m² |
| Fyllingar | 9.300 m³ |
| Götulýsing, skurðgröftur og strengir | 1.000 m |
| Rafstrengir | 300 m |
| Fráveitulagnir | 1.300 m |
| Kaldavatnslagnir | 200 m |
| Hitaveitulagnir | 400 m |
| Styrktarlag | 4.500 m³ |
| Burðarlag | 2.200 m³ |
| Malbik | 16.000 m² |
| Grjótvörn | 37.000 m³ |
| Göngustígar | 700 m² |
| Kantsteinar | 1.850 m |
Stefnt er að verktaki hefjist handa með haustinu og að verkinu verði að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2021.





