Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands
		
					12.09.2018			
										
	Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi auglýsa eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Veittir verða styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er að finna upplýsingar um umsóknarferli, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Nánari upplýsingar í síma 433-2310 eða senda fyrirspurn á netfangið: uppbyggingarsjodur@ssv.is
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 2. október 2018.
					

 
 



