Matjurtagarðar 2020 - opnað fyrir umsóknir
		
					29.04.2020			
										
	Reitir í matjurtagörðum Akraneskaupstaðar eru lausir til útleigu fyrir sumarið 2020. Eins og fyrri ár verður í boði að leigja 100 fermetra reiti sem kosta kr. 4.000 og 50 fermetra reiti sem kosta kr. 2.000. Garðarnir verða tilbúnir til notkunar 23. maí næstkomandi. Athugið að matjurtagarðarnir eru eingöngu til úthlutunar fyrir íbúa sem hafa lögheimili á Akranesi.
Ekki verður hægt að velja sér reiti heldur er þeim úthlutað í númeraröð. Þetta fyrirkomulag verður viðhaft til að þétta og bæta nýtingu garðanna. Nánari upplýsingar veitir Sindri Birgisson umhverfisstjóri.
Hér er sótt um í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar
 
					 

 
  
 



