Skoðuðu félagsmiðstöðvar í Kaupmannahöfn og Malmö
Nýverið fóru níu starfsmenn í frístundaþjónustu á Vesturlandi með starfsfólki Flotans - flakkandi félagsmiðstöðvar til Kaupmannahafnar og Malmö að skoða félagsmiðstöðvar og annað skipulagt frístundastarf. Í hópnum voru fjórir starfsmenn Akraneskaupstaðar, þeir Ívar Orri Kristjánsson, Bergur Líndal Guðnason og Jón Hjörvar Valgarðsson úr Þorpinu og Vigdís Elfa Jónsdóttir af velferðar- og mannréttindasviði.
Farið var í Vesterbro Ungdomsgård í Kaupmannahöfn og Ungdomenshus í Malmö þar sem fram fer víðtækt frístundastarf fyrir börn og ungmenni. Húsin eru vel búin og bjóða uppá ýmsa möguleika til afþreyingar. Á báðum stöðum er aðstaða fyrir ungt tónlistarfólk til að æfa sig og taka upp tónlist.
Hópurinn fór líka í hverfið Hyllie og fékk kynningu á verkefninu „Unga minds“ í Malmö sem er samfélagsverkefni og byggir að stórum hluta á knattspyrnu, en líka öðrum íþróttum og félagsstarfi fyrir krakka í viðkvæmari hverfum. Þar er lögð áhersla á jákvæða uppbyggingu einstaklingsins, sjálfsmynd, samkennd og leiðtogahæfni.
Ungmennaráð Vesturlands hefur óskað eftir auknu samstarfi á milli félagsmiðstöðva á Vesturlandi og fleiri sameiginlegum verkefnum. Starfsfólk í frístundaþjónustu á Vesturlandi hefur tekið því fagnandi og var starfsfólkið með vinnustofu þar sem ýmsar útfærslur og möguleikar á því voru skoðaðir.






