Fara í efni  

Fengu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í íslenskunámi

Jón Gunnar Þórðarson frá Bara tala ásamt fimm af þeim níu starfsmönnum sem hlutu viðurkenningar.
Jón Gunnar Þórðarson frá Bara tala ásamt fimm af þeim níu starfsmönnum sem hlutu viðurkenningar.

Níu erlendir starfsmenn Akraneskaupstaðar fengu á dögunum verðlaun fyrir frábæran árangur í íslenskunámi sem þeir stunduðu í gegnum stafrænu íslenskukennslulausnina Bara tala. Akraneskaupstaður var á meðal fyrstu sveitarfélaga landsins til að innleiða lausnina, en síðan þá hafa 20 önnur sveitarfélög fylgt í fótspor þeirra og tekið appið í notkun fyrir sitt starfsfólk.

Í lausninni æfir starfsfólk sig í starfstengdum orðaforða og samtölum sem nýtast beint í daglegum störfum, til dæmis í leikskólum og heimahjúkrun. Alls eru 36 virkir nemendur hjá Akraneskaupstað og á síðustu 12 mánuðum hafa þeir að meðaltali lært í rúmar 19 klukkustundir sem er sannarlega frábær árangur.

Emelía Królak, Karolina Kurpias og Marah Khaddaj fengu viðurkenningu fyrir að ljúka sumaráskorun sem Harpa Hallsdóttir, mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar, setti upp í appinu. Ewa Dabrowska hlaut sérstök verðlaun fyrir einstaka seiglu, en hún hefur klárað yfir 90 klukkustundir af íslenskunámi í Bara tala. Þá hlutu Arleta Iona Kluziak, Jolanta Ewa Szwaba, Edyta Wieczorek, Laima Linares Hurtado og Rosemarie Magbanue viðurkenningar fyrir að hafa lokið á bilinu 30-75 klukkustunda lærdómi í Bara tala.


Þær Emelía og Karolina koma báðar frá Póllandi og vinna í leikskólum bæjarins. Þær eru sammála um að appið hafi hjálpað þeim mikið við að læra málið og auka orðaforðann í starfi.

„Í Bara tala fær maður tækifæri til að tjá sig og segja eitthvað hátt án þess að aðrir heyri. Útlendingar eru oft feimnir við að tala hátt vegna þess að íslenskur framburður er mjög erfiður. Bara tala veitir mér sjálfstraust til að tala upphátt,“ segir Karolina. Emelía bætir við að lausnin hafi nýst henni dásamlega í vinnunni á leikskólanum til að tileinka sér ný og gagnleg orð.

Þetta er annað árið í röð sem Bara tala verðlaunar erlent starfsfólk hjá Akraneskaupstað og ljóst er að þessi viðburður er kominn til að vera. Aðstandendur Bara tala lýsa yfir mikilli ánægju með samstarfið:

„Það er orðið ljóst að þetta er orðinn árlegur viðburður og við erum strax farin að hlakka til að koma aftur hingað til að fagna þeim sem eru að læra tungumálið. Lausnin er jú búin til fyrir þau, fólkið sem er að leggja sig fram við að læra okkar skrýtna og skemmtilega tungumál," segir Jón Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Bara tala.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu