Dagskrá Írskra daga helgina 5.- 8. júlí
		
					27.06.2018			
										
	Írskir dagar verða haldnir hátíðlegir í 19 sinn dagana 5. - 8. júlí næstkomandi. Hátíðin hefur fest sig í sessi í gegnum árin og er einn af hápunktum sumarsins á Akranesi. Dagskráin lofar góðu og finna sér allir eitthvað eitthvað við hæfi. Líkt og önnur ár er keppnin rauðhærðasti Íslendingurinn og í verðlaun er ferð fyrir tvo til Írlands í boði Gaman ferða.
					

 
 



