Bæjarstjórnarfundur 11. september
		
					07.09.2018			
										
	1278. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 11. september kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Dagskrá fundarins er aðgengileg hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti, 16-18, laugardaginn 8. september kl. 11:00
 - Frjálsir með framsókn í Stúkuhúsinu, 10. september kl. 20:00
 - Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, laugardaginn 8. september kl. 10:30
 
					

 
 



