Fara í efni  

Ærslabelgurinn við Akraneshöll komin í gang

Ærslabelgurinn við Akraneshöll hefur nú verið settur í gang fyrir sumarið. Ærslabelgurinn er vinsælt leiktæki meðal barna og er hann opinn frá kl. 08:00-23:00 alla daga frá maí til september. 

Mikilvægt er að virða reglur og umgengi þarna í kring til þess að koma í veg fyrir slys. Það má t.d. ekki fara á belginn í rigningu, bannað að hoppa með eitthvað oddhvasst eða keyra á skellinöðrum eða vespum yfir belginn. Þá er ekki leyfilegt að borða á belgnum, hoppa í skóm eða vera með gleraugu á sér á meðan verið er að hoppa. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu