Kellingar ganga um Partana og Breiðina
Viðburður
Hvenær
7. júní kl. 13:30-15:00
Hvar
Akratorg
Létt ganga um Partana og Breiðina. Staldrað við á nokkrum stöðum og sögur sagðar.
Eins og undanfarin ár ætla Kellingarnar að bjóða upp á sögugöngu á Sjómannadaginn. Að þessu sinni verður gengið um Partana og Breiðina og hefst gangan á Akratorgi kl. 13:30. Rifjuð verður upp saga húsa og fólksins sem í þeim bjó. Eitthvað verður talað um útgerð og verslun að ógleymdum sjóslysum.





