Fara í efni  

Hádegistónar í Breið

Menningarfélagið Bohéme kynnir í samstarfi við Breið þróunnarfélag tónleika númer tvö í Hádegistónleikaröðinni Hádegistónar í Breið Það er hún Hanna Þóra Guðbrandsdóttir,söng og skagakona ásamt Hrönn Þráinsdóttur,píanóleikara sem koma fram á þessum öðrum tónleikum raðarinnar.

Menningarfélagið Bohéme kynnir í samstarfi við Breið þróunnarfélag tónleika númer tvö í Hádegistónleikaröðinni Hádegistónar í Breið

 

Það er hún Hanna Þóra Guðbrandsdóttir,söng og skagakona ásamt Hrönn Þráinsdóttur,píanóleikara sem koma fram á þessum öðrum tónleikum raðarinnar. 

Á tónleikunum munu þær flytja fjölbreytta tónlist eftir m.a. Grieg, Gomez, Verdi og Tryggva M Balvinsson.

Hanna Þóra og Hrönn hafa margsinnis komið fram saman við hin ýmsu tækifæri í gegnum árin og átt farsælt og gott samstarf.  Hlakkar þeim til að taka á móti ykkur og gleðja með tónlist.

 

Tónleikarnir fara fram á annari hæð Breið nýsköpunarsetur (áður HB & Co) fimmtudaginn 7.mai kl 12:05 og er áætlað að þeim ljúki kl 12:35.

 

Aðgangur er ókeypis.

 

Tilvalið að skella sér í hádegishléinu og njóta lifandi tónlistar.

 

Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Menningarfélagið Bohéme og Breið þróunnarfélag. Það er styrkt af SSV og Akraneskaupstað.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu