Fara í efni  

Frostbiter - Hryllingsmyndahátíð

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin í sjötta sinn á Akranesi 11. til 12. mars. Hátíðin verður öll á einum stað, gamla Landsbankahúsinu á torginu. Á hátíðinni verða sýndar 33 hryllingsstuttmyndir og 2 myndir í fullri lengd.
Á Frostbiter verða sýndar 33 stuttmyndir allstaðar að úr heiminum ásamt 2 myndum í fullri lengd. Önnur myndin verður Miracle Valley eftir Greg Sestero sem gerði garðinn frægann sem Mark úr the Room sem er af mörgum talin besta versta bíómynd sögunnar. Greg verður til viðtals eftir sýningu og svarar spurningum gesta um gerð Miracle Valley en þetta verður evrópu frumsýning á myndinni. Hin myndin í fullri lengd verður tilkynnt síðar en hún hefur hingað til verið einhver gömul og góð meðan við rennum niður kjötsúpu í lok hátíðar.
 
Frítt er inn á alla viðburði Frostbiter í ár.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00