Fara í efni  

Framtíðarsýn fyrir Ægisbraut kynnt

Þrjár hönnunarstofur hafa nú lokið við að vinna frumtillögur að framtíðarsýn fyrir Ægisbraut, en tillögurnar verða kynntar fyrir bæjarbúum á fundi á miðvikudag. Hlekk á viðburðinn á Facebook er að finna hér fyrir ofan.

Fundurinn verður haldinn í sal Grundaskóla kl. 17, miðvikudaginn 20. maí. Stofurnar þrjár eru Basalt, Hjark og Tark.

Stofurnar fengu sex vikur til að klára tillögurnar, en markmiðið var að móta heildstæða sýn fyrir svæðið með áherslu á:

  • aðgengi og tengingar
  • náttúru og staðaranda
  • nýja íbúðarbyggð
  • 8–10 deilda leikskóla
  • tengsl við núverandi byggð og skólasvæði

Tillögurnar eru fyrst og fremst hugmyndalegs eðlis og ætlaðar til að skapa umræðu, kanna mismunandi nálganir og leggja faglegt mat á möguleika og áskoranir svæðisins.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta og kynna sér framtíðarsýnina fyrir Ægisbraut.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu