Farið á fjörur við Hildi Björnsdóttur í Akranesvita

Hildur verður í Akranesvita sunnudaginn 10.september kl.13 - 15 sem er síðasti sýningardagur sýningar hennar Farið á fjörur. Þá gefst tækifæri að spjalla við listamanninn og sjá sýninguna sem hefur verið vel sótt í sumar. Verkin eru unnin út frá ljósmyndum sem hún hefur tekið á Íslandi undanfarin ár. Ljósmyndirnar hafa flestar verið teknar við sjávarsíðuna á Vesturlandi. Verkin eru unnin á álplötur og prentuð á grófan vatnslitapappír. Listakonan segir sjálf að hún heillist að hinum sífellda breytileika og litadýrð íslenskrar náttúru í samspili við árstíma.
Hildur Björnsdóttir er starfandi listakona í Noregi og hefur stundað nám í myndlist og grafík á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð.
Hún er meðlimur í SIM, Íslensk Grafík, NBK (Norske Billedkunstnere), BOA (Bildende kunstnere i Oslo- og Akershus), BkiB (Bildende kunstnere i Bærum og KKV-B (Konstnärernas Kollektivverkstad i Bohuslän) .
Heimasíða: www.hildurb.no