Fara í efni  

Bjartmar Guðlaugsson & Hipsumhaps á Írskum dögum

Það verður sannkölluð tónlistarveisla þegar Bjartmar Guðlaugsson... & Hipsumhaps stíga á svið saman þann 3. júlí á Akranesi.

Tónlist Bjartmars hefur átt stóran sess í íslenskri tónlistarsögu og nú fær hann félagsskap frá Hipsumhaps, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frumlega og einlæga tónlist.

„Ég ætla að fara halda tónleika með hinum og þessum - hér og þar. Bjartmar er fyrstur á blað. Ég elska tónlistina hans. Hann er goðsögn í íslenskri tónlistarsögu.” segir Fannsi, Hipsumhaps.

Saman munu þeir setja saman smekklegan lagalista þar sem lög úr smiðju beggja fá að njóta sín – með frábærri hljómsveit að baki. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara.

Hljómsveit kvöldsins:

Bjartmar Guðlaugsson - söngur og gítar

Fannar Ingi Friðþjófsson - söngur og gítar

Bergur Einar Dagbjartsson - trommur

Kristinn Þór Óskarsson - gítar

Ólafur Alexander Ólafsson - bassi

Tómas Jónsson - hljómborð

Tumi Árnason - saxófónn

Tónleikarnir fara fram á Írskum dögum í Guinnesstjaldinu, Lopapeysusvæðinu, þann 3. júlí á Akranesi.

Við hlökkum til að sjá ykkur

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00