Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

135. fundur 16. september 2020 kl. 16:00 - 18:45 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Anna Þóra Þorgilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Svala Kristín Hreinsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.COVID 19 - aukið félagsstarf fullorðinna sumarið 2020

2005237

Félagsmálaráðuneytið veitti sveitarfélögum styrk til verkefna til að auka stuðning við félagsstarf fyrir aldraða og öryrkja í sumar. Akraneskaupstaður fékk styrk til að bjóða upp á fjölbreytt tómstundaverkefni og liggur lokaskýrsla þessa verkefnis fyrir.
Hildur Ingadóttir sjúkraþjálfari, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir íþróttakennari og Laufey Jónsdóttir forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu mættu á fundinn og sátu hann undir þessum lið.
Kynnt voru þau verkefni og fjölbreytt tómstundatilboð sem voru í boði í sumar.

2.Jafnlaunavottun - úttekt

2005060

Á 1317. fundi bæjarstjórnar þann 8. september 2020 var Jafnlaunavottun úttekt, vísað til umsagnar í fagráðum, ungmennaráði og öldungaráði Akraness.
Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármálasviðs kemur inn á fundinn undir þessum lið. Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir jafnlaunastefnu Akraneskaupstaðar með athugasemdum. Steinar víkur af fundi.

3.Reglur Akraneskaupstaðar um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum.

2009128

Í fjáraukalögum fyrir árið 2020, sbr. lög nr. 26/2020, nr. 36/2020, um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir til að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins, var samþykkt 600 m.kr. framlag til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að veita styrki til tekjulágra heimila þannig að öll börn geti óháð efnahag stundað íþróttir og aðrar tómstundir.
Félagsmálaráðuneytinu hefur gefið út leiðbeiningar til að samræma úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum fyrir sveitarfélög. Styrkirnir eru veittir af sveitarfélögum á grundvelli VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Sveitarfélög setja sérstakar reglur um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vinnulag vegna úthlutunar á íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn á tekjulágum heimilum. Ráðið felur starfsmönnum sviðsins að útfæra framkvæmd verkefnisins.

Fundi slitið - kl. 18:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00