Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

17. fundur 22. júlí 2015 kl. 16:00 - 19:45 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Ingibjörg Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björnsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Fundargerð ritaði: Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Skagastaðir 2015

1504015

Guðrún Gísladóttir, forstöðumaður þjónususkrifstofu Vinnumálastofnunar á Vesturlandi mætti á fundinn. Rætt var um stöðu Skagastaða og framhald samstarfs við Vinnumálastofnun.
Guðrún sagði frá því hvernig samstarfið um Skagastaði horfir við henni sem forstöðumanns þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Vesturlandi.
Fram kom að Guðrún er ánægð með samstarfið. Hún telur starfið mikilvægt og komi í veg fyrir félagslega einangrun.

2.Breytingar á vinnuskipulagi í búsetuþjónustu

1507089

Bylgja Mist Gunnarsdóttir mætir á fundinn og fer yfir tillögur að breytingum á vinnuskipulagi og mönnun í búsetuþjónustu fyrir fatlaða.
Ráðið tekur vel í þær breytingar sem lagðar eru til. Ráðið tekur undir að auglýst verði eftir faglærðum starfsmönnum, t.d. þroskaþjálfum. Ráðið óskar eftir samþykki bæjarráðs fyrir útgjaldaaukanum sem því fylgir.

3.Eignarhald og rekstur bifreiðar UI-241

1502133

Aðstandendur eigenda bifreiðarinnar UI-241, sem hefur verið nýtt af íbúum sambýlisins við Laugarbraut, hafa ákveðið að selja hana.
Málið kynnt.

4.Fundargerðir 2015 - Samráðshópur um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6

1504123

Fundargerð 3.-6. fundar fundar samráðshóps um þjónustumiðstöð að Dalbraut 6 lagðar fram til kynningar.

5.Ósk um samstarf um rannsóknarverkefni

1507087

Janus Guðlaugsson, doktor í íþrótta- og heilsufræði við HÍ hefur óskað eftir samstarfi um rannsóknarverkefni um heilsueflingu meðal eldri borgara.
Ákveðið að óska eftir kynningu á verkefninu. Ráðið leggur til að fulltrúum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og Höfða verði boðið að sitja kynninguna.

6.Forsendur vinnslu fjárhagsáætlunar 2016

1507027

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 lagt fram til kynningar, sbr. bókun bæjarráðs frá 16. júlí 2015.

Fundi slitið - kl. 19:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00