Fara í efni  

Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)

64. fundur 03. október 2006 kl. 17:30 - 19:00

64. fundur tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarherbergi, Stillholti 16 -18, mánudaginn 3. október 2006 og hófst hann kl. 17:30.


 

Mætt á fundi:            Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, formaður

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir

Silvia Llorens Izaguirre

Helgi Pétur Magnússon

Jón Þór Þórðarson, áheyrnarfulltrúi ÍA

                               

Einnig sat Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri  fundinn og ritaði fundargerð.


 

Fyrir tekið:

 

1. Starf forvarnarfulltrúa.

Farið var yfir þær umsagnir sem bárust um starfslýsingu forvarnarfulltrúa. Tómstunda- og forvarnarnefnd mælir með því við bæjarráð að komið verði á starfi forvarnarfulltrúa og um fullt starf verði að ræða. Með tillögunni fylgir starfslýsing.

 

2.  Önnur mál. 

 

  • Rætt um samráðsfund um málefni ungs fólks. Ákveðið að fundurinn verði 24. október
  • Lagðir fram punktar úr umræðum 9. bekkinga frá forvarnardeginum
  • Fundargerð frá 5. fundi unglingaráðs 21.09.09 lögð fram

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:00.

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00