Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)
61. fundur tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarherbergi, Stillholti 16 -18, þriðjudaginn 21. ágúst 2006 og hófst hann kl. 18:00. 
Mætt á fundi:            Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, formaður
                               Sæmundur T. Halldórsson
                               Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
                               Silvia Llorens Izaguirre
 
Einnig sat Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri fundinn og ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Málefni Hvíta hússins. Fyrir fundinum lá bréf frá æskulýðsfulltrúa og sviðsstjóra fræðslu-, tómstunda- og íþróttasviðs. Í bréfinu er lagt til að starf deildarstjóra æskulýðsmála í Hvíta húsinu og starf deildarstjóra æskulýðsmála í Arnardal verði sameinað í eitt starf. Talsverðar umræður urðu um málið.
Nefndarmenn samþykkja tillögur bréfritara og fela sviðsstjóra að vinna áfram að málinu. 
2. Önnur mál.
Lagður fram bæklingur um Íþrótta- og tómstundaskólann til   kynningar. 
Sagt frá vinnu með ?ávísun á öflugt tómstundastarf?
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:10.
					
 
 



