Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

39. fundur 05. maí 2014 kl. 16:30 - 19:20

Fundinn sátu:
Kristján Sveinsson formaður
Valdimar Þorvaldsson
Guðrún M. Jónsdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Hjördís Guðmundsdóttir fulltrúi starfsmanna
Helga Atladóttir hjúkrunarforstjóri
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Fyrir var tekið:
 
1) Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir Garðar Halldórsson.

2) Viðburðaryfirlit
Lagt fram viðburðaryfirlit frá 21.2. til 2.5.2014.

3) Höfðagrund 23, kauptilboð
Stjórn Höfða samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð í Höfðagrund 23, dagsett 23.4.2014 frá Þórnýju Elísdóttur.  Stjórn Höfða veitir jafnframt Kjartani Kjartanssyni kt. 020766-3799 fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis að undirrita kaupsamning, afsal og önnur skjöl vegna sölu á Höfðagrund 23.

4) Bréf Aldísar Þorbjörnsdóttur, Kolbrúnar Katarínusardóttur og Vilborgar Kristinsdóttur.
Framkvæmdastjóra falið að afgreiða málið samkvæmt ákvæðum um námsleyfi í kjarasamningi sjúkraliða.

5) Starfsmannafatnaður
Stjórn Höfða samþykkir fyrirliggjandi tillögu að endurnýjun á starfsmannafatnaði að fjárhæð 1,3 mkr.  Gert verði ráð fyrir fjárhæðinni í viðauka fjárhagsáætlunar 2014.

6) Starfsmannahald
Mönnun í aðhlynningu.  Hjúkrunarforstjóri gerði grein fyrir málinu.  Tillaga hennar til úrbóta samþykkt.

7) Vistrými
Stjórn Höfða samþykkir að fara þess á leit við Velferðarráðuneytið að 4 dvalarrýmum verði breytt í hjúkrunarrými.  Jafnframt samþykkir stjórn Höfða að breyta einu hjúkrunarrými í hvíldar- og skammtímarými.

8) Önnur mál
Framkvæmdastjóri lagði fram tilboð frá ProActive í ráðgjöf, fræðslu og námskeið fyrir stjórnendur og starfsfólk Höfða.
Samþykkt að ganga að tilboði ProcActive og framkvæmdastjóra falið að sækja um styrki hjá viðkomandi stéttarfélögum.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00