Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
1. Vistunarmál
Staðfest vistun fyrir 3 einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 03.09.2026:
Hjúkrunarrými: 66 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 64 einstaklingar.
2. Rekstraryfirlit 1. janúar 2026 til 30. júní 2026
Framkvæmdastjóri fór yfir framlag rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til júní 2026.
Lagt fram.
3. Viðauki 1: Viðbótarlaun sjúkraliða skv. áfangasamkomulagi
Framkvæmdastjóri lagði fram umsókn um viðauka 1 vegna ársins 2026. Framkvæmdastjóri fór yfir ástæðu viðaukans, þ.e. viðbótarlaunakostnað sjúkraliða vegna afturvirkrar hækkunar sem gildir frá og með 1. apríl 2025. Hækkunin byggir á áfangasamkomulagi Sambandsins og SLFÍ vegna 7. gr. frá 11.jún.2024.
Stjórn samþykkir viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026 vegna framangreinds, samtals að fjárhæð 8.744.903 kr. sem færðar verða á bókhaldslykil 1691 (laun utan launabókhalds) og skiptist á deild 02130 (4.897.146 kr.) og 01130 (3.847.757 kr.), og verður mætt með handbæru fé.
Framkvæmdastjóra falið að senda inn erindi varaðandi samþykkt viðaukans til bæjarráðs Akraneskaupstaðar.
4. Stækkun Höfða
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu verkefnisins.
Stjórn Höfða leggur áherslu á að þessari vinnu verði hraðað sem nokkur kostur er.
5. Staða samningaviðræðna við Sjúkratryggingar Íslands vegna þjónustusamnings
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna í samningaviðræðunum.
6. Dagdvöl Höfða
Framkvæmdastjóri fór yfir drög að nýju samkomulagi við Sjúkratryggingar Íslands.
7. Mannauðsmál
a.Trúnaðarmál
Til kynningar fyrir stjórn.
8. Önnur mál
a. Næsti fundur stjórnar.
Ákveðið að halda næsta fund 26. október 2026, kl. 16:30.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:32





