Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

123. fundur 15. nóvember 2021 kl. 16:30 - 17:40 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Nefndarmenn
  • Elsa Lára Arnardóttir formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Björn Guðmundsson
  • Helgi Pétur Ottesen
Starfsmenn
  • Guðmunda Maríasdóttir fulltrúi starfsmanna
  • Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri
  • Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fundargerð ritaði: Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Fyrir var tekið:

1.  Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir fimm einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 12.11.2021:
Hjúkrunarrými: 30 einstaklingar.
Dvalarrými: 8 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 33 einstaklingar.

2.  Fjárhagsáætlun 2021 – viðauki 2
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Höfða fyrir árið 2021 ásamt greinargerð framkvæmdastjóra.
Breytingar gera ráð fyrir 51,9 mkr. hækkun á áætluðum tekjum og til 34,9 mkr. hækkunar á rekstrargjöldum. Breytingar í viðauka leiða til jákvæðrar rekstrarniðurstöðu upp á 17,3 mkr. sem er breyting upp á 16,9 mkr. frá viðauka 1. Viðauki 2 gerir ráð fyrir hækkun á handbæru fé um 37,9 mkr. og nemur það 197 mkr. í árslok 2021.
Stjórn Höfða samþykkir viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2021.

3.  Fjárhagsáætlun 2022
Samkvæmt framlagðri áætlun fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að rekstrartekjur Höfða nemi 1.298,6 mkr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta nema 1.254,8 mkr. Afskriftir nema 25,1 mkr. og fjármagnsliðir nema nettó 14,6 mkr. Óreglulegir liðir nema 18,6 mkr. Hagnaður af rekstri án óreglulegra liða nemi 4,1 mkr. en með óreglulegum liðum nemi tapið 14,6 mkr. Handbært fé frá rekstri nemi 22,8 mkr., fjárfestingahreyfingar nemi nettó 105,6 mkr. og fjármögnunarhreyfingar nemi 18,6 mkr. Lækkun á handbæru fé nemi 101,5 mkr. og að handbært fé í árslok verði 95,1 mkr.
Lögð fram til seinni umræðu og samþykkt.

4.  Fjárhagsáætlun 2023-2025
Lögð fram til seinni umræðu og samþykkt.

5.  Fundargerðir framkvæmdanefndar, dags. 19.10., 22.10., 26.10. og 28.10.2021
Lagðar fram.

6.  Önnur mál
a) Bréf starfsmannafélags Höfða dags. 14.11.2021
Stjórn samþykkir erindi starfsmannafélagsins.



 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00