Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

99. fundur 16. júlí 2019 kl. 16:30 - 18:00 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Fundinn sátu:  Elsa Lára Arnardóttir formaður, Kristjana Helga Ólafsdóttir varaformaður, Helgi Pétur Ottesen, Björn Guðmundsson, Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri  

Fyrir var tekið:          

1.      Starfsmannamál

Hallveig Skúladóttir hjúkrunarforstjóri Höfða hefur sagt upp starfi sínu frá og með 1. ágúst   2019.  Stjórn Höfða þakkar Hallveigu fyrir störf sín í þágu Höfða og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.  Stjórn Höfða felur framkvæmdastjóra að undirbúa og hefja ráðningarferli á nýjum hjúkrunarforstjóra.  

2.      Bréf heilbrigðisráðuneytis dags. 3.7.2019 varðandi umsókn Höfða um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til Höfða vegna endurbóta á 2. hæð samtals að fjárhæð kr. 59.938.611.

Stjórn Höfða fagnar ákvörðun ráðherra um úthlutun til Höfða.

Stjórn Höfða samþykkir skipun 3ja manna framkvæmdanefndar vegna endurbótanna og verður hún þannig skipuð:

Formaður nefndarinnar skv. tilnefningu frá Akraneskaupstað

Björn Guðmundsson

Kristjana Helga Ólafsdóttir  

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00