Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

65. fundur 04. ágúst 2016 kl. 16:30 - 17:35 Höfða

Fundinn sátu:

Kristjana Helga Ólafsdóttir formaður, Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir,  Kristján Sveinsson,  Margrét Magnúsdóttir,  Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Fyrir var tekið:  

1. Fundarboð á félagsfund SFV þann 8.ágúst um stöðu hjúkrunarheimila

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu samninga við Sjúkratryggingar Íslands. Stjórn Höfða veitir stjórnarformanni og framkvæmdastjóra fullt umboð til að samþykkja þátttöku Höfða í sameiginlegum aðgerðum til að knýja á um gerð rammasamninga um þjónustu hjúkrunarheimila.

2. Rekstur Höfða

Á fundi stjórnar 18.apríl sl. var framkvæmdastjóra og húsmóður var falið að vinna að endurskipulagningu á starfsemi eldhúss Höfða. Kjartan, Hallveig og Sigurlín fóru yfir hugmyndir að breytingum. Stjórn felur þeim að vinna áfram með framkomnar hugmyndir. Undir þessum lið komu inn á fundinn Hallveig Skúladóttir hjúkrunarforstjóri og Sigurlín Gunnarsdóttir húsmóðir.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.35

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00