Fara í efni  

Stjórn Akranesstofu (2008-2013)

21. fundur 03. nóvember 2009 kl. 17:00 - 17:50

21. fundur stjórnar Akranesstofu var haldinn þriðjudaginn 3. nóvember 2009 í fundarherbergi á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 17:00.

_____________________________________________________________ 

Mættir:      Þorgeir Jósefsson, formaður

                   Bergþór Ólason, varaformaður

                   Þröstur Þór Ólafsson, varamaður

                   Hrönn Ríkharðsdóttir, varamaður

                   Margrét Snorradóttir, aðalmaður

                   Arnheiður Hjörleifsdóttir, aðalmaður, fulltrúi Hvalfjarðarsveitar.

Auk þeirra Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri sem einnig ritaði fundargerð.

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

_____________________________________________________________ 

Fyrir tekið:

1.   Viskubrunnur ? framgangur verkefnis og næstu skref

Verkefnastjóri gerði grein fyrir þeim hugmyndum og verkefnum sem unnið er að í tengslum við ?Viskubrunn?.  

Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu.

2.   Menningarverðlaun Akraness 2009 

Formaður lagði fram tillögu um veitingu Menningarverðlauna Akraness árið 2009.

Tillagan samþykkt samhljóða.  

3.   Samstarf stofnana sem heyra undir Akranesstofu

Verkefnastjóri kynnti framgang þeirrar vinnu sem kynnt var á 20. fundi stjórnar Akranesstofu hinn 6. október sl. um öflugra samstarf þeirra stofnana sem heyra undir Akranesstofu, en tillögurnar ganga í stuttu máli út á að efla samstarfið og nýta betur starfskrafta þeirra sem starfa hjá viðkomandi stofnunum.

Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

4.   Bæjarlistamaður Akraness 

Formaður lagði fram tillögur að breyttu fyrirkomulagi úthlutunar starfsstyrks til bæjarlistamanns Akraneskaupstaðar. 

Tillaga formanns samþykkt samhljóða og verkefnastjóra falið að senda bæjarráði tillöguna. 

5.   Önnur mál

      ·   Aðalfundur Byggðasafnsins ? fundargerð

Lögð fram. 

      ·   Menningarmiðstöð á Breið ? minnisblað frá Bjarna Jónssyni, Ragnheiði Skúladóttur og Guðrúnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, dags. 1. nóvember 2009, f.h. Lókal varðandi framgang verkefnisins og fyrirhuguð næstu skref.

Lagt fram 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:50.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00