Fara í efni  

Stjórn Akranesstofu (2008-2013)

11. fundur 10. desember 2008 kl. 17:00 - 18:10

11. fundur stjórnar Akranesstofu var haldinn miðvikudaginn 10. desember 2008 í fundarherbergi á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 17:00.

_____________________________________________________________ 

Mættir:                  Þorgeir Jósefsson, formaður

                                Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

                                Hjördís Garðarsdóttir

                                Arnheiður Hjörleifsdóttir 

                                Hrönn Ríkharðsdóttir varamaður

Auk þeirra Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri sem einnig ritaði fundargerð. 

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

_____________________________________________________________ 

Fyrir tekið:

 

1.   Undirritun Söfnunarstefnu Byggðasafnsins í Görðum.

      Gengið var frá undirritun Söfnunarstefnu Byggðasafnsins í Görðum.

2.   ?Viskubrunnur í Álfalundi?.

      Verkefnastjóri kynnti frekari framvindu verkefnisins í framhaldi af

      bókun bæjarráðs frá 3. desember sl. þar sem ráðið óskar eftir áætlun

      um verkferli, tímaáætlun og fjármögnun vegna verksins. 

3.   Uppgjör Vökudaga 2008.

      Verkefnastjóri lagði fram uppgjör vegna Vökudaga 2008. Kostnaður

      vegna hátíðarinnar varð 3.283.159 sem var nokkuð undir þeirri áætlun

      sem lögð var til grundvallar.

4.   Önnur mál. 

      a.   Erindi frá bæjarráði Akraness þar sem Akranesstofu

            er falið að eiga viðræður við Landmælingar Íslands vegna

            samnings Akraneskaupstaðar og LÍ um sýningu í

            Safnaskálanum með hliðsjón af hugmyndum um breytt

            rekstrarfyrirkomulag á Safnasvæðinu.

      Formanni falið að ræða við Landmælingar Íslands.

      b.   Fyrirspurn um yfirstandandi endurskoðun og uppfærslu

            vefja Akraneskaupstaðar.

      Málin rædd.

 

      c.    Breyting á erindisbréfi.

      Leiðrétta þurfti dagsetningar á samþykkt reglna um starfstyrk

      bæjarlistamanns Akraneskaupstaðar í 6. grein, 9.tölulið.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:10.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00