Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

194. fundur 29. júní 2022 kl. 08:30 - 10:00 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Liv Aase Skarstad aðalmaður
  • Íris Guðrún Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra
  • Guðrún Sigvaldadóttir áheyrnarfulltrúi leikskólakennara
Starfsmenn
  • Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
  • Dagný Hauksdóttir verkefnastjóri
  • Alfreð Þór Alfreðsson rekstrarstjóri
  • Ásbjörn Egilsson
Fundargerð ritaði: Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Dagskrá
Eftirfarandi áheyrnarfulltrúar taka sæti á fundinum:

Íris G. Sigurðardóttir fulltrí skólastjórnenda

Guðrún Sigvaldadóttir fulltrúi leikskólakennara

Gestir á fundinum

Alfreð Alfreðsson og Ásbjörn Egilsson frá skipulags- og umhverfissviði.

Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir fulltrúi í foreldraráði Garðasels.

1.Leikskóli Skógarhverfi, Asparskógar 25

2008156

Staðan í framvindu byggingar nýs leikskóla við Asparskóga og aðgerðir til að bregðast við seinkun á opnun hans.
Skóla- og frístundaráð þakkar Ásbirni og Alfreð fyrir góða kynningu á framvindu í byggingu leikskólans.

Í upphaflegum áætlunum um byggingu nýs leikskólahúsnæðis fyrir leikskólann Garðasel var gert ráð fyrir að allt starf leikskólans flyttist inn í nýja byggingu í ágúst 2022. Þegar fór að líða á framkvæmdatímann kom í ljós að seinkun yrði á framkvæmdunum sem skýrist af ýmsum orsökum. Þegar það lá fyrir voru gerðar ráðstafanir til þess að tvær deildar yrðu tilbúnar við upphaf starfs í ágúst 2022 og á þeim forsendum samþykkti skóla- og frístundaráð á 187. fundi sínum þann 22.3. að innrita börn fædd til og með júlí 2021 í leikskólana á Arkanesi. Þá var jafnframt bókað „Ef frekari tafir verða á byggingu leikskólans við Asparskóga er búið að tryggja leikskólastarfinu annað hentugt húsnæði þar til leikskólinn verður tekinn í notkun.“
Í byrjun maí var það ljóst að markmiðið um að tvær deildar yrðu tilbúnar við upphaf leikskólastarfs í ágúst, næðist ekki og var því hafist handa við að finna fullnægjandi húsnæði fyrir hóp úr leikskólanum til að brúa þann tíma frá því að starfið hefst í ágúst og þar til a.m.k. tvær deildar verða tilbúnar í nýja leikskólanum.
Besti kosturinn er talinn vera að fá aðgang að „Þekjunni“ sem er nýuppgert húsnæði, fyrir tuttugu og þrjú elstu börnin á leikskólanum, en Brekkubæjarskóli hefur nýtt rýmið fyrir frístundaheimili. Skólastjórnendur Brekkubæjarskóla hafa af mikilli velvild verið fús til samstarfs til þess að mæta þörfum leikskólans.
Á síðustu dögum hefur verið unnið ötulega að því að ná samstarfi við verktaka við byggingu leikskólans um að hægt verði að opna tvær deildar í nýja leikskólanum um mánaðarmótin september / október og er talið fullvisst að það gangi eftir.
Stjórnendur í Garðaseli undirbúa nú að fullum krafti upphaf skólastarfs í ágúst og flutning í nýjan leikskóla. Í ágúst er gert ráð fyrir að skólinn starfi á tveimur starfsstöðvum og elsti árgangurinn fari tímabundið á Þekjuna en strax í október munu þau fara í nýja leikskólann. Þrátt fyrir nýjar aðstæður verður áfram lögð mikil áhersla á að það gæða leikskólastarf sem hefur einkennt starfið á Garðaseli hingað til.
Áheyrnarfulltrúar og gestir víkja af fundi.

2.Menntastefna- endurnýjun

2002069

Kynning á samþykktri menntastefnu Akraneskaupstaðar

3.Starf forstöðumanns íþróttamannvirkja 2022

2203240

Kynning á ráðningu í starf forstöðumanns íþróttamannvirkja á Akranesi.

Fundi slitið - kl. 10:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00