Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

17. fundur 11. ágúst 2015 kl. 16:30 - 18:15 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sigríður Indriðadóttir formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson aðalmaður
  • Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Inga Guðnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Svala Kristín Hreinsdóttir deildarstjóri skólaþróunar og sérfræðiþjónustu
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir deildarstjóri skóla- og frístundasviðs
Dagskrá

1.Grundaskóli - bætt aðstaða fyrir nemendur

1505117

Erindi nemendafélags Grundaskóla um bætta aðstöðu í unglingadeild. Erindið var tekið fyrir í bæjarráð 28.5.2015 og 25.6.2015. Að fenginni umsögn stjórnenda Grundaskóla samþykkti bæjarráð erindið fyrir sitt leyti og óskar eftir að framkvæmdirnar verði teknar inn í framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs að fenginni umsögn skóla- og frístundaráðs.
Á fundinn mættu Elís Þór Sigurðsson og Borghildur Birgisdóttir áheyrnafulltrúar kennara í grunnskólum, Sigurður Arnar Sigurðsson aðstoðarskólastjóri í Grundaskóla áheyrnafulltrúi skólastjórnenda í grunnskólum og Elísabet Einarsdóttir áheyrnafulltrúi foreldra í grunnskólum.

Skóla- og frístundaráð þakkar nemendaráði Grundaskóla fyrir erindið. Ráðið mælir með þessum framkvæmdum og þeim verði hraðað eins og kostur er.
Elís Þór, Sigurður Arnar, Borghildur og Elísabet viku af fundi kl. 16:45.

2.Fjárhagsáætlun 2016

1502210

Tíma- og verkáætlun vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2016 liggur fyrir. Forstöðumenn hafa verið að taka saman fyrstu drög að upplýsingum er snúa meðal annars að magntölum, nauðsynleg viðhaldsverkefni, endurnýjun á stofnbúnaði og upplýsingar um breytingar sem geta haft áhrif á starfsemina til lengri eða skemmri tíma.
Á fundinn mættu kl. 16:45 Brynhildur Björg Jónsdóttir áheyrnafulltrúi skólastjórnenda í leikskólum og Guðríður Sigurjónsdóttir áheyrnafulltrúi starfsmanna í leikskólum.

Upplýsingar um magntölur fyrir leikskóla lagðar fram til kynningar.

3.Innritun í leikskóla - athugasemdir

1508079

Fyrirspurn hefur borist frá foreldrum vegna innritunar í leikskóla. Innritun beinist að gr. 1.3. í Verklagsreglum um starfsemi leikskóla Akraneskaupstaðar um aldur við innritun.
Guðríður vék af fundi kl. 18:00. Skóla- og frístundaráð mun bjóða bréfriturum til fundar og kynna þeim stöðu mála varðandi innritun í leikskóla.

Fundi slitið - kl. 18:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00