Fara í efni  

Skipulagsnefnd (2000-2002)

109. fundur 13. maí 2002 kl. 15:00 - 16:40

109. fundur skipulagsnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, 13. maí 2002 kl. 15:00.

Mættir á fundi: Jóhannes Snorrason formaður,
  Edda Agnarsdóttir,
  Heiðrún Janusardóttir,
  Lárus Ársælsson,
  Sigurlína G. Júlíusdóttir.
Auk þeirra Skúli Lýðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi sem ritaði fundargerð.

1. Vogahverfi deiliskipulag, breyting  Mál nr. SN020029
Uppdráttur Magnúsar H. Ólafssonar að breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis.  Meðfylgjandi er afrit af bréfi Málfríðar K. Kristiansen dags. 26. apríl 2002 varðandi skipulagið.
Afgreiðsla:  Tillagan kallar á breytingu á aðalskipulagi vegna ákvæða  um lágmarksstærðir á lóðum og skilgreiningu á landnotkun.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í framkomna tillögu að deiliskipulagi miðað við að íbúðarhús á lóðum verði að minsta kosti 200 m2 og heildarbyggingarmagn á hverri lóð verði 600 ? 2400 m3.  Heildarhæð  húsa verði að hámarki 8,5 m.
Yfirfara þarf ákvæði um hæð á neðstu gólfplötu, samræma götubreiddir og yfirfara fyrirkomulag göngu og reiðstíga.
Nefndin leggur jafnframt til að útbúin verði sérstök gjaldskrá fyrir stórbýlalóðir.

2. Garðabraut 2, fyrirspurn   (000.681.01) Mál nr. BN020048
501199-3039 Ægisbraut 9 ehf. , Jaðarsbraut 25, 300 Akranesi.
Erindi byggingarnefndar varðandi fyrirspurn Runólfs Þ. Sigurðssonar fyrir hönd Ægisbrautar 9 ehf., um hvort heimilt verði að setja gönguhurð á suðurhlið hússins samkvæmt meðfylgjandi rissi.
Afgreiðsla:  Skipulagsnefnd getur ekki fallist á framkomna tillögu.

3. Deiliskipulag, kostnaðarmat.,   Mál nr. SN020030
Bréf byggingar- og skipulagsfulltrúa varðandi kostnaðarmat vegna deiliskipulags óskipulagðra svæða.
Afgreiðsla:  Lagt fram.  Byggingar- og skipalgsfulltrúa falið að kynna bæjarráði kostnaðarmatið.

4. Golfvöllur - Garðalundur, deiliskipulag, tillaga  Mál nr. SN020005
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Teikningar vegna deiliskipulags Golfvallar og Garðalundar lagðar fram.
Afgreiðsla:  Nefndin leggur til að hönnuður og stjórn golfklúbbsins mæti á næsta fund nefndarinnar.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16:40

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00