Fara í efni  

Skipulagsnefnd (2000-2002)

98. fundur 11. desember 2001 kl. 15:00 - 17:00

98. fundur skipulagsnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, 11. desember 2001 kl. 15:00.

Mættir á fundi:  Jóhannes Snorrason formaður,
 Sigurlína Guðrún Júlíusdóttir,
 Heiðrún Janusardóttir,
 Edda Agnarsdóttir,
 Lárus Ársælsson.
Auk þeirra Magnús Þórðarson byggingar- og skipulagsfulltrúi og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.

1. Flatahverfi, deiliskipulag klasa 7-8.,   Mál nr. SN010016
Umfjöllun um endanlega skipulagsskilmála og deiliskipulag í klasa 7-8.
Formanni skipulagnefndar falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri við skipulagshönnuði.

2. Flatahverfi, deiliskipulag klasa 1-2.  Mál nr. SN010018
Umfjöllun um endanlega skipulagsskilmála og deiliskipulag í klasa 1-2.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkomin tillaga að deiliskipulagi verði samþykkt.

3. Akratorgsreitur - deiliskipulag.  Mál nr. SN000039
Breyting á deiliskipulagi Akratorgsreits varðandi Kirkjubraut 25 og Vesturgötu 48.
Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir komu fram.  Skipulagsnefnd leggur því til við bæjarstjórn að framkomin tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00