Fara í efni  

Skipulagsnefnd (2000-2002)

64. fundur 06. febrúar 2001 kl. 13:00 - 15:15

64. fundur skipulagsnefndar haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, þriðjudaginn 6. febrúar 2001 kl. 13:00.

Mættir á fundi: Jóhannes Snorrason formaður,
 Edda Agnarsdóttir,
 Sigurlína G. Júlíusdóttir,
Lárus Ársælsson,
 Guðbjartur Hannesson.
Auk þeirra Skúli Lýðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi, Þorvaldur Vestmann sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.

Fyrir tekið:

1. Akratorgsreitur ? deiliskipulag.
Endurskoðun deiliskipulags.
Bjarni Vésteinsson mætti á fundinn lagði fram leiðrétt grunnkort af deiliskipulagsreitnum á tölvutækuformi.  Ráðgjafa falið að hefja frekari vinnu við að:
· Yfirfara mörk á byggingarreitum.
· Yfirfara umferðarskipulag.
· Yfirfara bílastæðaþörf og endurskilgreina þau svæði sem hægt er að nota til að uppfylla bílastæðaþörf innan deiliskipulagsreitsins.
· Framkvæma húsakönnun þ.e. skoða húsbyggingar með tilliti til aldurs og minjagildis húsa.

2. Flatahverfi, deiliskipulag klasi 9.
610596-2829 Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar sf. Jörundarholti 30, 300 Akranesi.
Tillaga Gísla Sigurðssonar fyrir hönd Trésmiðju Þráins um deilisskipulag á klasa nr. 9 í Flatahverfi.
Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að ræða við skipulagshönnuð.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00