Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

124. fundur 02. september 2019 kl. 08:15 - 11:00 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður
  • Ólafur Adolfsson varaformaður
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Stefán Þór Steindórsson byggingarfulltrúi
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Þór Steindórsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulag Skógarhverfi 2. áf. - breyting á skipulagsmörkum.

1906112

Kynningarfundur vegna deiliskipulags Skógarhverfi 2, breyting á skipulagsmörkum, var haldinn 26.8.2019. Meðfylgjandi er fundargerð frá fundinum ásamt ábendingum sem bárust eftir fundinn.

2.Deiliskipulag Skógarhverfi 4.áf.

1905357

Kynningarfundur vegna deiliskipulags Skógarhverfi 4.áfangi, var haldinn 26.8.2019. Meðfylgjandi er fundargerð frá fundinum ásamt ábendingum sem bárust eftir fundinn.

3.Deiliskipulag Garðalundur - breyting skipulagsmörk

1906111

Kynningarfundur vegna deiliskipulags Garðalundar, breyting á skipulagsmörkum, var haldinn 26.8.2019. Meðfylgjandi er fundargerð frá fundinum ásamt ábendingum sem bárust eftir fundinn.

4.Deiliskipulag Skógarhverfi 1. áfangi - Asparskógar 18

1906102

Lögð fram greinargerð hönnuðar vegna athugasemda sem bárust vegna grenndarkynningar við Asparskóga 18.

5.Hleðslustöðvar

1903321

Skipulags-og umhverfisráð felur sviðsstjóra að flýta vinnu vegna úthlutunarskilmála sjóðs sem veitir styrk til húsfélaga í fjöleignahúsum vegna hleðslustæða.

6.Fimleikahús - búnaður

1907028

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir þá aðferðafræði sem lögð er fram í meðfylgjandi minnisblaði frá VSÓ Ráðgjöf varðandi útboð á föstum búnaði fyrir fimleikahús sem nú er að rísa á Akranesi.

7.Krókatún 3 - umsókn um byggingarleyfi

1905331

Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breyttu útliti einbýlishúss þ.m.t hækkun á þaki. Í gildi er deiliskipulag Krókatún-Deildartún frá 2009.
Í deiliskipulagi er skráð stærð hússins 175,4m², gert er ráð fyrir að húsið stækki í 187,2m², eða 11,8m². Deiliskipulagsskilmálar: Heimilt er að byggja litlar viðbyggingar utan byggingarreita allt að 12m², í samræmi við byggingarstíl húsa þar sem aðstæður leyfa." Erindið var grenndarkynnt frá 20.júlí til og með 18. ágúst fyrir eigendum að Krókatúni 1, 2, 4A, 5 og 6. Undirritað samþykki hefur borist frá þeim er fengu grenndarkynninguna.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun og auglýsing um gildistöku birt í B-deild Stjórnartíðinda.

8.Kirkjubraut 17 - umsókn um byggingarleyfi

1905316

Umsókn um leyfi fyrir breytingum á útitröppum og stigapalli ásamt samnýtingu göngustígs. Erindið var grenndarkynnt frá 22. júlí til og með 22. ágúst 2019 fyrir eigendum Kirkjubraut 15, 19, 21 og Akurgerði 17a. Kirkjubraut 15, 19 og 21 ásamt eigendum að Akurgerði 17a. Undirritað samþykki barst frá eigendum að Kirkjubraut 21.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun og auglýsing um gildistöku birt í B-deild Stjórnartíðinda.

9.Skólabraut 37 - Umsókn um byggingarleyfi

1905410

Umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu kvists á norðurhlið og breyttum inngangi.
Grenndarkynningu lokið 23.8.2019, engar athugsemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun og auglýsing um gildistöku birt í B-deild Stjórnartíðinda.

10.Skólabraut 31 - umsókn um byggingarleyfi

1808052

Umsókn um að breyta bílskúr í íbúð tengda einbýlishúsinu. Erindið var grenndarkynnt frá 25. júlí til og með 26. ágúst fyrir eigendum ap Skólabraut 27, 29, 33 og Heiðargerði 3. Undirritað samþykki barst frá Skólabraut 29.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun og auglýsing um gildistöku birt í B-deild Stjórnartíðinda.

11.Reynigrund 5 - umsókn um byggingarleyfi

1906020

Umsókn um að stækka bílskúr um 3 metra og byggja sólskála framan við stofuglugga samkvæmt meðfylgjandi rissi. Hverfið er ekki deiliskipulagt, en á svæðinu er ígildi deiliskipulags. Stækkun á bílskúr og sólstofu fer út fyrir byggingarreit. Erindið var grenndarkynnt frá 27. júlí til og með 26. ágúst 2019 fyrir lóðarhöfum við Reynigrund 3, 7, 41, 43 og 45. Ein ábending barst.
Lögð fram ein ábending sem barst við grenndarkynninguna.

12.Deiliskipulag Grenja - umsókn um skipulagsbreytingu

1908284

Umsókn um stækkun byggingareits meðfram gömlu skipasmíðastöðinni, Lambhúsasundsmegin, samkvæmt meðfylgjandi teikningum frá Teiknistofu arkitekta.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að fram fari grenndarkynning á breytingu deiliskipulagi Grenja. Grenndarkynnt verði skv. 2. mgr. 43. gr. sbr. 2. mgr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir fasteignaeigendum við Vesturgötu 17, 19, og 25A.

13.Aðalskipulag Skógarhverfi - breyting

1901203

Kynningarfundur vegna breytinga á aðalskipulagi Skógarhverfis var haldinn 26.8.2019. Meðfylgjandi er fundargerð frá fundinum ásamt ábendingum sem bárust eftir fundinn.

14.Deiliskipulag Skógarhverfi 3. áfangi A

1908198

Kynningarfundur vegna deiliskipulags Skógarhverfis áfangi 3A, var haldinn 26.8.2019. Meðfylgjandi er fundargerð frá fundinum ásamt ábendingum sem bárust eftir fundinn.

15.Deiliskipulag Skógarhverfi 3. áfangi B

1908199

Kynningarfundur vegna deiliskipulags Skógarhverfis áfangi 3B, var haldinn 26.8.2019. Meðfylgjandi er fundargerð frá fundinum ásamt ábendingum sem bárust eftir fundinn.

Fundi slitið - kl. 11:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00