Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

103. fundur 14. febrúar 2019 kl. 08:15 - 10:00 Tónlistarskólanum að Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður
  • Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir varaformaður
  • Ólafur Adolfsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Stefán Þór Steindórsson byggingarfulltrúi
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
  • Jón Brynjólfur Ólafsson verkefnastjóri
  • Karl Jóhann Haagensen verkefnastjóri
  • Sindri Birgisson umhverfisstjóri
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá

1.Starfshópur um framtíðaruppbyggingu á Jaðarsbökkum

1703194

Kynning starfshóps um tillögu að framtíðaruppbyggingu á Jaðarsbökkum.

Um er að ræða sameiginlegan dagskrárlið bæjarráðs, skóla- og frístundaráðs, skipulags- og umhverfisráðs og velferðar- og mannréttindaráðs sem fer fram í Tónbergi.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar starfshópnum fyrir greinargóða kynningu og afar góða og faglega vinnu sem innt hefur verið að hendi af öllum hlutaðeigandi.

Fyrirséð er að framvinda fyrirhugaðrar uppbyggingar á Jaðarsbökkum mun ráðast af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins og forgangsröðun verkefna.

2.Velferðarstefna Vesturlands

1901121

Drög að umsögn velferðarstefnu Vesturlands til umræðu á sameiginlegum dagskrárlið bæjarráðs, velferðar- og mannréttindaráðs, skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs sem fer fram í Tónbergi.
Samþykkt að vinna áfram sameiginlega að umsögninni og leggja hana fyrir á bæjarstjórn þann 26. febrúar næstkomandi.

Fundi slitið - kl. 10:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00