Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

82. fundur 30. apríl 2018 kl. 16:15 - 18:40 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Kristín Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Stefán Þór Steindórsson byggingarfulltrúi
  • Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
  • Sindri Birgisson umhverfisstjóri
Fundargerð ritaði: Hafdís Sigurþórsdóttir fulltrúi
Dagskrá
Formaður óskar eftir, með vísan til samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar, að taka á dagskrá með afbrigðum mál. nr. 1801076 (Tjaldsvæðið í Kalmansvík - útboð) mál nr. 1708061 (Guðlaug - framkvæmdir) og mál nr. 1804162 (Skógræktarsvæð Akraness 2018 - styrkir og land til skógræktar). Málin verða nr. 6, 7 og 8 á dagskránni.

Samþykkt.

1.Vogabraut 28 - lóðarleigusamningur endurnýjun

1803103

Beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun á ofangreindum lóðarleigusamningi.

2.Esjubraut 30 - lóðarleigusamningur endurnýjun

1803231

Beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun á ofangreindum lóðarleigusamningi.

3.Ketilsflöt / Kalmansbraut - gatnaframkvæmd / útboð

1804230

Tilboð vegna gatnaframkvæmda við Ketilsflöt og gönguþverana við Kalmansbraut og Ketilsflöt.
Eftirfarandi tilboð bárust:

Þróttur vélaleiga ehf: kr. 59.017.780
Skóflan hf: kr 68.240.000
Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar ehf: kr. 76.701.300
Kostnaðaráætlun hönnuða: kr. 72.589.100

Skipulags- og umhverfisráð felur sviðsstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

4.Deilisk. Sementsreit - strompur

1804231

Breyting á deiliskipulagi, rif á sementsstromp.
Fyrir liggur niðurstaða skoðanakönnunar sem Akraneskaupstaður stóð fyrir.

Hlutfall þeirra sem vilja fella strompinn er 94.25%.
Hlutfall þeirra sem vill að strompurinn standi áfram er 5.75%.

Skipulags- og umhverfisráð felur sviðsstjóra að undirbúa skipulagsbreytingar á Sementsreitnum í þá veru að strompurinn verði felldur.

5.Deilisk. Skógahverfi 1. áfangi - Seljuskógar 1, 3, 5.

1804232

Umsókn um breytingu á deiliskipulagi vegna byggingarmagns.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna breytinguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Grenndarkynna skal fyrir lóðarhöfum við Seljuskóga 6, 7, 8, 12 og 14 og við Asparskóga 4, 6 og 8.

6.Tjaldsvæðið í Kalmansvík - útboð

1801076

Opnun tilboða í leigu á rekstri tjaldsvæðisins í Kalmansvík 2018 - 2020.
Eftirfarandi tilboð bárust í leigu á rekstri á Tjaldsvæðinu:

Reykjamörk Camping ehf. - kr. 800.000
Ásta Ósk Sigurðardóttir - kr. 2.621.000
Landamerki ehf. - kr. 1.750.000
Rafney ehf. - kr. 1.050.000

Sviðsstjóra falið að ganga til samninga við hæstbjóðanda.

Þess skal getið að eftir opnun tilboða kom í ljós tilboð sem hafði verið sent með rafrænum hætti. Tilboðsgjafi var EIH ehf. og hljóðaði tilboðsupphæð upp á - kr. 2.100.000

7.Guðlaug - framkvæmdir

1708061

Hugmyndir um aðstöðumál við Guðlaugu á Langasandi ásamt betrumbótum á göngustíg og fegrun svæðisins voru kynntar á bæjarráðsfundi sem haldinn var þann 26. apríl s.l.
Bæjarráð tók vel í hugmyndirnar og fól umhverfisstjóra og verkefnastjóra að vinna áfram að verkefninu í samræmi við umræður á fundinum. Bæjarráð vísar verkefninu til skipulags- og umhverfisráðs.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar umhverfisstjóra góða kynningu og felur honum að vinna málið áfram.

8.Skógræktarfélag Akraness 2018 - styrkir og land til skógræktar

1804162

Bæjarráð vísar erindi Skógræktarfélags Akraness um viðbótarstyrk dags. 16. apríl s.l. til umsagnar hjá skipulags- og umhverfisráði.
Sviðsstjóra og umhverfisstjóra falið að funda með stjórn Skógræktarfélags Akraness, til að fá nánari útskýringar á styrkbeiðni félagsins. Skipulags- og umhverfisráð stefnir að því að veita umsögn til bæjarráðs á næsta fundi ráðsins.

Fundi slitið - kl. 18:40.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00