Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

70. fundur 02. október 2017 kl. 16:15 - 18:15 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Kristín Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jóhannes Karl Guðjónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Stefán Þór Steindórsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Norræna ráðherranefndin - aðlaðandi bæir, norrænt samstarf

1709178

Sindri Birgisson umhverfisstjóri og Helena Guttormsdóttir frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri kynna norrænt verkefni um sjálfbæra þróun þéttbýla.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar Sindra og Helenu fyrir áhugaverða kynningu.

2.Umhverfisviðurkenningar 2017

1708089

Helena Guttormsdóttir kynnir niðurstöður/tillögur nefndarinnar.

Gögn lögð fyrir á fundinum.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar Helenu Guttormsdóttur fyrir góða kynningu á tilnefningum til umhverfisverðlauna 2017.

3.Fuglaskoðunarhús í Blautósi eða Innstavogsnesi - tillaga

1703220

Tillaga Stefáns S. Steinólfssonar um að leggja drög að og skipuleggja fuglaskoðunarhús við Blautós og/eða Innstavogsnesi.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar erindið og felur umhverfisstjóra frekari úrvinnslu málsins í samstarfi við Umhverfisstofnun.

4.Aðalsk. - Dalbraut og Þjóðbraut breyting

1701216

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2011 var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 20. júlí 2017. Athugasemdafrestur var til 7. september 2017.
Engin athugasemd barst.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt sbr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

5.Deilisk. Dalbraut - Þjóðbraut

1405059

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Dalbrautar-Þjóðbrautar, sem upphaflega var staðfest 1988, var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 3. ágúst 2017. Breytingin felst í því að skipulagssvæðið er minnkað til samræmis við deiliskipulag Dalbrautarreits, sem auglýst var 20. júlí 2017. Athugasemdafrestur var til 21. september 2017.
Engin athugasemd barst.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.

6.Deilisk. Dalbraut - Þjóðbraut

1405059

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Dalbrautarreits var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 20. júlí 2017. Athugasemdafrestur var til 7. september 2017.
Tvær athugasemdir bárust.

a) Athugasemd dags. 26. júlí 2017 frá Berglindi Ernu Þórðardóttur og Jes Friðrik Jessen Dalbraut 15.
b) Athugasemd dags. 31. ágúst 2017 frá stjórn FEBAN.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða greinargerð sviðsstjóra dags. 2.október 2017 sem svör við framkomnum athugasemdum við deiliskipulagið og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir eftirtaldar breytingar á deiliskipulagstillögunni:

Með hliðsjón af athugasemdum, sem bárust á auglýsingatímanum, samþykkir skipulags- og umhverfisráð eftirtaldar breytingar á auglýstri tillögu að deiliskipulagi Dalbrautarreits:

-Vesturálmur Dalbrautar 6 og 8 verði lækkaðar þannig að þær verði þriggja hæða með efstu hæð inndregna. Með breytingunni minnkar skuggavarp á nálægar lóðir verulega. Byggingarmagn er minnkað um rúmlega 700 m² og íbúðum fækkað um 8 (miðað við um 90 m² meðalstærð).

-Dalbraut verði útfærð miðað við hámarkshraða 30 km/klst. Með því verður umferðaröryggi aukið og komið í veg fyrir hraðakstur í götunni.

- Breyting á skilmálum Dalbrautar 4, kafli 3.3.4: Heimilt verði að auka lofthæð á allri jarðhæð Dalbrautar 4 þannig að gólf verði sem næst í gangstéttarhæð og bílakjallari alveg niðurgrafinn. Breytingin felur hvorki í sér aukið byggingarmagn né hækkun húss.

Tillagan er í samræmi við sambærileg svæði á miðsvæðum og er svo breytt ekki talin fela í sér verulega skerðingu eða inngrip í aðstöðu nágranna og eignaréttindi. Ný þétt og blönduð byggð á svæðinu mun hafa jákvæð áhrif á íbúaþróun, húsnæðismál og atvinnulíf á Akranesi og er það vegið á móti neikvæðum áhrifum á nálæga íbúðarbyggð vestan Dalbrautar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan svo breytt verði samþykkt sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda eftir að breyting á aðalskipulagi sama svæðis hefur verið staðfest.
Jafnframt er eldra deiliskipulag svæðis milli Dalbrautar, Stillholts og Þjóðbrautar, sem samþykkt var 12. desember 2006 með síðari breytingum, fellt úr gildi.

Þar sem breytingar frá auglýstri tillögu eiga ekki við meginatriði tillögunnar, fela í sér minnkað byggingarmagn og draga úr neikvæðum áhrifum á aðliggjandi byggð þarf ekki að auglýsa tillöguna að nýju.

7.Deilisk. Akratorgsreitur - Merkigerði 2 breyting

1708148

Deiliskipulagsbreytingin var grenndarkynnt með athugasemdafresti frá 28. ágúst til 28. september 2017.
Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Fundi slitið - kl. 18:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00