Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)

1. fundur 26. janúar 2009 kl. 16:00 í fundarherbergi, Dalbraut 8
Fundargerð ritaði: Guðný J. Ólafsdóttir
Dagskrá

1.Bjarkargrund 30. Umsókn um að setja hurð út á pall úr baðherbergi

901169

Umsókn Sturlaugs Sturlaugssonar og Jóhönnu H. Hallsdóttur um heimild til að setja útihurð á baðherbergi til að komast þaðan og út á sólpall, samkvæmt meðfylgjandi rissi.

Bókun byggingarfulltrúa:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 29.01.2009

Gjöld kr. 11.871,-

Lagt fram.

2.Krókatún - Deildartún

810182

Deiliskipulagsuppdráttur Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur arkitekts lagður fram.



Framkvæmdastjóra falið að koma á framfæri við hönnuð athugasemdum sem fram komu á fundinum.

3.Örnefnaskráing.

901174

Kynning á samstarfsverkefni Landmælinga Íslands og Skipulags- og umhverfisstofu um örnefnaskráningu.



Framkvæmdastjóri kynnti samstarfsverkefni Landmælinga Íslands og Skipulags- og umhverfisstofu á örnefnaskráningu.

4.Fjárhagsáætlun 2009 - verkefni ársins

901173

Verkefni ársins 2009 m.v. fjárhagsáætlun 2009.


Framkvæmdastjóri kynnti verkefnalista fyrir árið 2009.

5.Fundaáætlun skipulags- og umhverfisnefndar 2009 - tillaga

901172

Tillaga um fundaáætlun lögð fram.

Sviðsstjóri kynnti áætlun um fundi Skipulags- og umhverfisnefndar árið 2009.

6.Umhverfismál - áherslur o.fl.

901177

Umræður um áherslur í umhverfismálum o.fl.

Fundarmenn ræddu áherslur nefndarinnar í umhverfismálum.

7.Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar.

902007

Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar lagt fram til kynningar.



Farið var yfir erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar. Fastir fundir nefndarinnar verða fyrsta og þriðja mánudag í mánuði. Varafulltrúar fá dagskrá funda senda rafrænt, forfallist aðalmaður ber hann ábyrgð á að boða varamann.


Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00