Fara í efni  

Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)

46. fundur 14. janúar 2008 kl. 16:00 - 19:00

46. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 14. janúar 2008 kl. 16:00.

 

Mætt á fundi:           

Bergþór Helgason formaður

Magnús Guðmundsson

Helga Jónsdóttir

Guðmundur Magnússon

Björn Guðmundsson

Auk þeirra voru mætt:

Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs

Runólfur Þór Sigurðsson byggingarfulltrúi

Guðný J.Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð

 

 

Byggingarmál

 

 

1.

Smiðjuvellir 17, stærðaraukning á húsi með milligólfi.

(000.541.06)

Mál nr. SB060055

 

630688-1249 Bílás ehf, Smiðjuvellir 17, 300 Akranesi

630688-1249 Bílás ehf, Þjóðbraut 1, 300 Akranesi

Umsókn Magnúsar Óskarssonar kt. 200252-3499 f.h. Bíláss ehf. um breytingu á áður samþykktum teikningum.  Breytingin felst í að setja efri hæð í stóran hluta eignarrýma 0101 og 0103 , samkvæmt  meðfylgjandi uppdráttum Magnúsar H. Ólafssonar arkitekts.

Stærðir í auknum fermetrum  er 623,50 m2

Gjöld kr.:  5.724.066,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 10.01.2008

 

 

2.

Skólabraut 25A, breyting á notkun

 

Mál nr. SB080004

 

270466-5249 Ágústa Hjördís Friðriksdóttir, Jörundarholt 198, 300 Akranesi

080863-5009 Guðni Hannesson, Skólabraut 20, 300 Akranesi

Bréf lóðareigenda við Skólabraut 25A móttekið 7. janúar 2008 þar sem óskað er eftir að breyta notkun hússins úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði.

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í að húsnæðinu verði breytt úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði.

Tekið skal fram að leggja þarf fram teikningar sem uppfylla gildandi byggingarreglugerð.

 

Skipulagsmál

 

 

3.

Kirkjubraut, deiliskipulag

 

Mál nr. SB060139

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Árni Ólafsson arkitekt og Hrund Skarphéðinsdóttir verkfræðingur mættu á fundinn.

Árni og Hrund mættu á fundinn og gerðu grein fyrir gangi mála í vinnu skipulagsins.

 

 

4.

Aðalskipulag, endurskoðun á forsendum

 

Mál nr. SB070208

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Árni Ólafsson arkitekt og Hrund Skarphéðinsdóttir verkfræðingur mæta á fundinn.

Farið var yfir breyttar forsendur aðalskipulagsins.

Ráðgjöfum falið að koma með mat á áhrifum nýrrar íbúaspár.

 

 

5.

Flóahverfi, deiliskipulag

 

Mál nr. SU060023

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Skipulags- og byggingarnefnd felur sviðsstjóra að kanna hvort breytingar á mörkum iðnaðarsvæðisins skv. umræðum á fundinum sé hagkvæm og leggja niðurstöðuna fyrir nefndina svo fljótt sem auðið er.

 

 

6.

Asparskógar 2, 4, 6, 8 og 10, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070169

 

700189-2369 Trésmiðja Snorra Hjaltason hf, Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík

Breytingin var auglýst skv. 1. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Athugasemdafrestur rann út 20. desember 2007.

Engar athguasemdir bárust.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.

 

7.

Sólmundarhöfði -Dreifistöð

Fyrirspurn Or um dreifistöð

 

Mál nr. SB070161

 

551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Breytingin var auglýst skv. 1. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Athugasemdir bárust frá íbúum í Grundahverfi.

Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að spennistöð er lítið en nauðsynlegt mannvirki sem mjög lítil áhrif mun hafa á útsýni eða skuggavarp á svæðinu, því getur nefndin ekki fallist á óskir íbúanna um að færa spennistöðina.

Nefndin leggur hins vegar til að gert verði ráð fyrir gróðurbelti á milli göngustígs og spennistöðvar til að koma til móts við ábendingu íbúanna.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.

 

 

 

8.

Ægisbraut/Stillholt, deiliskipulagsbreyting

 

Mál nr. SB070034

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Breytingin var auglýst skv. 1. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, samhliða aðalskipulagsbreytingu á svæðinu.

Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.

 

 

9.

Æðaroddi, deiliskipulag endurskoðað

 

Mál nr. SB070147

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Breytingin var auglýst skv. 1. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Athugasemdafrestur rann út 9. janúar 2008.

Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.

 

 

10.

Álfalundur 6-8, fyrirspurn

 

Mál nr. SB080001

 

280164-7399 Baldur Ragnar Ólafsson, Esjubraut 19, 300 Akranesi

131179-4729 Birgir Guðmundsson, Safamýri 39, 108 Reykjavík

Bréf lóðahafa  við Álfalund  6-8, dags. 3.12.2007 þar sem þeir óska eftir að fá að breyta skilmálum á lóðunum þannig að byggja megi parhús á einni hæð í stað tveggja.

Nefndin getur ekki orðið við erindinu.

 

 

11.

Ketilsflöt, sjálfsafgreiðslustöð

 

Mál nr. SB070107

 

590602-3610 Atlantsolía ehf, Vesturvör 29, 200 Kópavogur

Bréf bæjarráðs dags. 21. desember þar sem óskað er umsagnar nefndarinnar vegna ítrekunar á umsókn fyrir sjálfsafgreiðslustöð við Ketilsflöt.

Skipulags- og byggingarnefnd vill árétta að svæði sem Atlantsolía óskar eftir lóð á verður deiliskipulagt á árinu 2008. Nefndin hefur því á þessu stigi ekki forsendur til að taka faglega afstöðu til umsóknarinnar.

 

 

12.

Langasandsbakkar, veitingastaður

 

Mál nr. SB080002

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Bréf bæjarráðs dags. 4. janúar 2008 þar sem óskað er umsagnar nefndarinnar á umsókn Gunnars L. Stefánssonar um að fá lóð á Jaðarsbökkum ofan við núverandi WC aðstöðu, undir veitingastað.

Skipulags- og byggingarnefnd getur ekki fallist á staðsetningu á veitingahúsi ofan við núverandi WC aðstöðu þar sem gert er ráð fyrir bílastæðum.

Nefndin vísar að öðru leyti á nýlegt deiliskipulag af svæðinu sem gerir ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi þ.m.t. byggingarreit fyrir þjónustu og veitingahús.

 

 

13.

Skipulagsstofnun, námskeið

 

Mál nr. SB080003

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Tilkynning um námskeið á vegum Skipulagsstofnunar sem vera á í Reykjavík 31. janúar og 1 febrúar lögð fram.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:00

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00