Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
121. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal að Dalbraut 8 , mánudaginn 7. nóvember 2005 kl. 17:00.
| Mætt á fundi:             | Magnús Guðmundsson formaður Lárus Ársælsson  Kristján Sveinsson  Bergþór Helgason  Edda Agnarsdóttir  | 
| Auk þeirra voru mætt:  | Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð | 
 
| 1. | Sunnubraut 12 - Akratorgsreitur, deiliskipulagsbreyting |  | Mál nr. SU040029 | 
130863-5319 Guðrún Margrét Jónsdóttir, Sunnubraut 12, 300 Akranesi
Málið var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, fyrir íbúum við Suðurgötu 99 og 103 og Sunnubraut 10, 11, 13, 14 og 15. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.
| 2. | Kirkjubraut 9 - 11 - Akratorgsreitur, aukið byggingamagn |  | Mál nr. SU050064 | 
150269-4749 Vignir Björnsson, Súluhöfði 14, 270 Mosfellsbær
Bréf Vignis Björnssonar dags. 11. okt. 2005 þar sem hann fer fram á að fá að auka byggingamagn í 1,9 á lóðum 9 og 11 við Kirkjubraut.
Í gildandi deiliskipulagi er nýtingarhlutfall lóðanna Kirkjubraut 9 ?11 um 1,1.
Skipulags- og umhverfisnefnd getur fallist á aukið byggingamagn á lóðunum, en taka þarf tillit til nýtingarhlutfalls nálægra lóða og hæða nálægra bygginga.
Sviðsstjóra falið að afla frekari upplýsinga um byggingaráform hjá bréfritara.
| 3. | Nýlendureitur - Grenjar, Vesturgata, deiliskipulag |  | Mál nr. SU050063 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Nýr uppdráttur frá ASK arkitektum af deiliskipulagi fyrir Nýlendureit lagður fram til kynningar.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í þessar hugmyndir og leggur  til að hönnuðir skili inn endanlegum uppdráttum.
Sviðstjóra falið að koma lagfæringum og athugasemdum á framfæri við hönnuði.
| 4. | Þjóðbraut - Dalbraut, deiliskipulag - endurskoðun |  | Mál nr. SU050069 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Tillaga um að endurskoða deiliskipulag svæðisins vegna breytinga skv. aðalskipulagstillögu sem nú er á lokastigi.
Sviðsstjóra falið að leita eftir hönnuðum til að endurskoða deiliskipulag svæðisins ?Þjóðbraut-Dalbraut?.
| 5. | Fjárhagsáætlun 2006 |  | Mál nr. SU000000 | 
Sviðsstjóri lagði fram tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2006:
| Endurskoðun aðalskipulags | kr. | 400.000 | 
| Deiliskipulagsverkefni: | ||
| Akratorgsreitur | kr. | 2.000.000 | 
| Arnardalsreitur | kr. | 2.000.000 | 
| Akratorg - útfærsla | kr. | 1.500.000 | 
| Nýtt byggingarsvæði | kr. | 2.500.000 | 
| Óskilgreind verkefni | kr. | 1.500.000 | 
| Rammaskipulag Kalmansvík | kr. | 1.500.000 | 
| SAMTALS | kr. | 11.400.000 | 
Nefndin samþykkir tilllögu sviðsstjóra.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:20
 
					
 
  
 



