Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
95. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal að Dalbraut 8 , mánudaginn 11. apríl 2005 kl. 17:00.
| Mætti á fundi:             | Magnús Guðmundsson formaður Lárus Ársælsson  Eydís Aðalbjörnsdóttir  Edda Agnarsdóttir  | 
| Auk þeirra voru mætt:  | Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfisnefnd Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð | 
| 1. | Mótun fjölskyldustefnu Akraneskaupstaðar, Stýrihópur um gerð fjölskyldustefnu, óskar eftir samstarfi við nefndina. |  | Mál nr. SU040050 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir drög að fjölskyldustefnu og setti á blað minnispunkta með athugasemdum sem sendir verða stýrihópi um fjölskyldustefnu.
| 2. | Jaðarsbakkar, skipulagsverkefni |  | Mál nr. SU040088 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Bréf tómstunda- og forvarnanefndar dags. 30. mars 2005 þar sem óskað er eftir kynningarfundi fyrir nefndina um tillögu að deiliskipulagi Jaðarsbakka áður en hún verður samþykkt. 
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að boða tómstunda og forvarnarnefnd á næsta fund nefndarinnar sem verður 18.apríl 2005.
| 3. | Vesturgata 52 - Akratorgsreitur, deiliskipulagsbreyting |  | Mál nr. SU040078 | 
291250-3279 Hervar Gunnarsson, Sogavegur 224, 108 Reykjavík
Deiliskipulagsuppdráttur frá Runólfi Sigurðssyni  lagður fram, áður frestuðu erindi.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði  grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 fyrir íbúum við Vesturgötu 48, 51, 53 og Skólabraut 2 og 4.
| 4. | Hvítanesreitur - hluti Akratorgsreits, aðalskipulagsbreyting |  | Mál nr. SU050009 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Athugasemdafrestur vegna breytingar á aðalskipulagi Hvítanesreits þar sem loka á Akurgerði milli Kirkjubrautar og Sunnubrautar er liðinn og ein athugasemd barst frá Hildi Jónsdóttur og Valmundi Eggertssyni. 
Sviðsstjóri leggur fram greinargerð vegna mótmælanna.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir eftirfarandi niðurstöðu sviðsstjóra að sinni:
?Umrædd breyting snýr fyrst og fremst að óverulegri breytingu á gatnakerfi kaupstaðarins. Ekki er hægt að fallast á þá röksemd sem fram er sett enda ekki fjallað um landnýtingu og nýtingarhlutfall svæðisins í aðalskipulagi.?
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki afgreiðslu nefndarinnar.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:30
 
					
 
  
 



