Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
66. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness var haldinn í fundarsal að Stillholti 16-18, mánudaginn 5. júlí 2004 kl. 16:00.
Mætt á fundi:                           Magnús Guðmundsson, formaður
                                                Kristján Sveinsson
                                                Edda Agnarsdóttir
                                                Lárus Ársælsson
Auk þeirra voru mætt:             
| 1. | Flatahverfi - klasi 5 og 6, deiliskipulag |  | Mál nr. SU030022 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Endurskoðuð tillaga að deiliskipulagi  í klasa 5 og 6  í Flatahverfi frá Arkitektum Hjördís og Dennis. 
Málinu frestað þar sem endanleg tillaga lá ekki fyrir, stefnt er að því að ljúka málinu á aukafundi eftir viku, þann 12. júlí 2004.
. 
| 2. | Garðalundur, deiliskipulag |  | Mál nr. SU030032 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Nýjar tillögur frá Magnúsi H. Ólafssyni arkitekt lagðar fram.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkomin tillaga að deiliskipulagi fyrir Garðalund verði samþykkt og verði deiliskipulagið auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
M.H.Ól falið í samráði við nefndina að kanna hvort deiliskipulagið kallar á breytingu á aðalskipulagi og honum falið að leggja fram aðalskipulagsbreytingu ef á þarf að halda.
 
| 3. | Brautir  deiliskipulag, Vallarbraut, lóðir undir raðhús |  | Mál nr. SU040057 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Nýjar skipulagstillögur frá Magnúsi H. Ólafssyni arkitekt lagðar fram.
Skipulags- og umhverfisnefnd felst á tillögurnar og felur M.H.Ól.
að ljúka við teikningar og greinargerð til samþykktar á aukafundi þann 12. júlí 2004.
| 4. | Kirkjugarðsskipulag, deiliskipulag |  | Mál nr. SU030054 | 
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Bréf frá Kirkjugarðaráði dags. 23. júní 2004.
Lagt fram og ákveðið að senda bæjarráði afrit af bréfinu. 
| 5. | Breyting á svæðisskipulagi sunnan Skarðsheiðar, Ytri-Hólmur 1, Innri Akraneshreppi |  | Mál nr. SU040058 | 
Bréf Skipulagsstofnunnar dags. 22. júní 2004
Lagt fram.
| 6. | Næsti fasti fundur skipulags- og umhverfisnefndar verður haldinn þriðjudaginn 3. ágúst 2004 kl. 16.00 |  |  | 
Fundi slitið kl. 17.15
 
 
					
 
  
 



