Fara í efni  

Menningarmála- og safnanefnd (2000-2008)

57. fundur 18. maí 2007 kl. 15:00 - 18:00

57. fundur í menningarmála- og safnanefnd var haldinn föstudaginn 18. maí 2007 með í fundarsal bæjarskrifstofu að Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 15:00.


 

Mættir:  Magnús Þór Hafsteinsson, formaður

Hjördís Garðarsdóttir

Björn Elíson

Varamaður:     Hrönn Ríkharðsdóttir.

 

Auk þeirra, Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari sem einnig ritaði fundargerð. 


 

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna til fundar.

 

Fyrir tekið:

 

1. Samvinna við Borgarbyggð í menningarmálum. 

Á fundinn mætti menningarnefnd Borgarbyggðar ásamt embættismönnum.

Rætt var um fyrirliggjandi viljayfirlýsingu um samstarf í menningarmálum og samkomulag um bóka- og ljósmyndasöfn sveitarfélaganna. 

Formaður menningarmála- og safnanefndar Akraness undirritaði samkomulögin fyrir hönd Akraneskaupstaðar og verða þau send bæjarstjórn til staðfestingar.

 

Að fundinum loknum var farið í skoðunarferð í ljósmyndasafn Akraness, Byggðasafnið að Görðum og í Haraldarhús.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00.

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00