Fara í efni  

Íþróttanefnd (2000-2002)

310. fundur 27. febrúar 2002 kl. 20:00 - 22:00

310. fundur íþróttanefndar var haldinn í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum,  miðvikudaginn  27. febrúar  2002 og hófst hann kl. 20:00

Mættir voru: Ingibjörg Haraldsdóttir formaður
 Sigurður Hauksson
Sævar Haukdal ritari
 Sigurður Haraldsson
 Jóhanna Hallsdóttir

Íþróttafulltrúi:  
Fulltrúi ÍA Sturlaugur Sturlaugsson

Fyrir tekið:

Dagskrá:

1. Skipting á 2. millj.kr. Íþróttanefndar milli húsa. 

Íþróttanefnd leggur til að keypt verði 6 mörk á æfingavelli vegna stóru knattspyrnumótanna og hlaupabretti í íþróttahúsið við Vesturgötu.

2. Stjórnskipulag Akraneskaupstaðar. 

Íþróttanefnd ítrekar þá skoðun sína að sameina á störf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í eina stöðu því fyrirliggjandi tillaga felur í sér verulegan kostnaðarauka fyrir bæjarsjóð.  Nefndin fagnar þeirri tillögu að íþróttamálin séu sett undir svið skólamála en telur að æskulýðsmálin eigi þar heima einnig.

3. Önnur mál.

Ø Reglur um húsaleigu- og æfingastyrkveitingar ræddar. 

Formanni falið að gera breytingar á reglunum samkvæmt umræðum á fundinum.

Ø Bréf sem sent var íþróttafélögum innan ÍA um kostnað við þjálfun barna og unglinga.  Lagt fram.

Ø Íþróttanefnd ítrekar þörf á gerfigrasvöllum á grunnskólalóðum bæjarins, sérstaklega vegna einsetningar skóla og þeim breytingum sem verða á viðverutíma barna í skólum.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21.45

Undirrituð.
Ingibjörg Haraldsdóttir formaður
 Sigurður Hauksson
Sigurður Haraldsson
Sævar Haukdal ritari
 Jóhanna Hallsdóttir

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00