Fara í efni  

Íþróttanefnd (2000-2002)

304. fundur 06. september 2001 kl. 20:00 - 22:00

304. fundur íþróttanefndar var haldinn í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum,  miðvikudaginn  6. september s.l.  2001 og hófst hann kl. 20:00


Mættir voru: Ingibjörg Haraldsdóttir
Sturlaugur Haraldsson
Sævar Haukdal ritari
 Sigurður Hauksson

Íþróttafulltrúi:  
Fulltrúi ÍA Sturlaugur Sturlaugsson


Fyrir tekið:

Dagskrá:

1. Tímatafla Íþróttahúsanna lögð fram til kynningar. Lögð fram.

2. Haustganga Íþróttanefndar 2001. Formanni íþróttanefndar falið að ganga frá skipulagningu og auglýsa hana. 

3. Framtíðarsýn á Íþróttamannvirkjum Akraness.  Settur verður á fundur síðar til að ræða skýrslu sem til er um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akranesi.

4. Gjaldskrárbreyting í tækjasal á Vesturgötu. Samþykkt að hækka mánaðarkort í þreksalinn við Vesturgötu úr 1500kr í 2000.kr

5. Önnur mál

Erindi frá kvennanefnd KIA um að fá að setja upp auglýsingaspjöld í íþróttasalinn við Jaðarsbakka samþykkt, en formanni falið að ræða við kvennanefnd KIA um hugsanlega sölu á drykkjum í húsinu.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21.30

Undirrituð.
Ingibjörg Haraldsdóttir
Sturlaugur Haraldsson
Sævar Haukdal
Sigurður Hauksson
Sturlaugur Sturlaugsson

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00