Fara í efni  

Hafnarstjórn (2000-2004)

12. fundur 21. mars 2001 kl. 16:00 - 18:00
Fundur í hafnarstjórn Akraness var haldinn miðvikud.  21. mars 2001 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 16:00.
 
Mættir voru: Guðmundur Vésteinsson, formaður,
 Þorsteinn Ragnarsson,
 Ágústa Friðriksdóttir,
 Pétur Ottesen,
 Herdís Þórðardóttir.
Auk þeirra yfirhafnarvörður, Þorvaldur Guðmundsson og hafnarstjóri, Gísli Gíslason.
 
Fyrir tekið:
1. Bréf Haraldar Böðvarssonar hf., dags. 9.2.2001, þar sem góðar kveðjur vegna komu Ingunnar AK150 eru þakkaðar.
Lagt fram.
 
2. Fundargerð stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga frá 6.2.2001.
Lögð fram.
 
3. Erindi Trésmiðjunnar Akurs hf. og Skóflunnar hf. um innlausn lóða við Hafnarbraut.
Hafnarstjórn getur ekki orðið við erindinu, en hafnarstjóra falið að ræða við bréfritara.
 
4. Bréf bæjarritarans á Akranesi, þar sem óskað er umsagnar um erindin Nótastöðvarinnar hf. um hækkun á þaki Faxabrautar 7.
Með tilliti til starfsemi hafnarsvæðinu, lítur hafnarstjórn jákvætt á erindið.
 
5. Skipulagsmál.
Málið rætt.
 
6. Framkvæmdir.
Hafnarstjóri og yfirhafnarvörður fóru yfir stöðu framkvæmda við höfnina.
 
7. Starfslýsingar starfsmanna Akraneshafnar.
Hafnarstjórn samþykkir að óska eftir því við starfskjaranefnd að starfslýsingarnar verði endurmetnar.
 
8. Önnur mál.
Þorsteinn vakti athygli á skráningu á eignarhaldi og þörfinni á makaskiptum á lóðarhlutum.
 
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00