Framkvæmdastjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita (2001-2006)
FRAMKVÆMDASTJÓRN BYGGÐASAFNS AKRANESS OG NÆRSVEITA
Ár 2001, þriðjudaginn 30. október kl. 19:30 kom framkvæmdanefnd Byggðasafns Akraness og nærsveita saman til fundar í safnahúsinu að Görðum.
Til fundarins komu: Valdimar Þorvaldsson, Jósef H. Þorgeirsson, og Anton Ottesen.
 Auk þeirra sat Jón Allansson forstöðumaður fundinn.
Þetta gerðist á fundinum:
1. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2002.
Jón lagði fram endurskoðuð drög að fjárhagsáætlun, sem framkvæmdanefndin mælir með við stjórn safnsins.
2. Jóni Allanssyni falið að leita eftir fjárstuðningi frá Speli hf. í Hvalfjarðargangasafn og frá Grundartangahöfn í ?hafnarframkvæmdir? á lóð safnsins.
Fleira ekki gert, fundi slitið.
 Jósef H. Þorgeirsson (sign)
 Valdimar Þorvaldsson (sign)
 Anton Ottesen (sign)
 Jón Allansson (sign)
 
					
 
 



