Fara í efni  

Framkvæmdaráð (2009-2014)

51. fundur 01. febrúar 2011 kl. 17:00 - 18:20 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Einar Benediktsson formaður
  • Sveinn Kristinsson aðalmaður
  • Gunnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Dagný Jónsdóttir varamaður
  • Jón Pálmi Pálsson framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu
  • Þorvaldur Vestmann framkvæmdastjóri Skipulags- og umhverfisstofu
Fundargerð ritaði: Þorvaldur Vestmann framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - rekstur íþróttavallar.

912005

Viðræður við Brynjar Sæmundsson framkvæmdastjóra Grastec ehf. og Hörð Jóhannesson, rekstrarstjóra íþróttamannvirkja, um enduruppbyggingu æfingarsvæðis á Jaðarsbökkum.

Brynjar kynnti niðurstöður skýrslunnar og rætt var um ýmsar útfærslur verkefnisins. Frmahaldi málsins vísað til umfjöllunar starfshóps um framkvæmdasamnings vegna verkefnisins.

2.Beiðni um niðurfellingu vegna húsaleigu

1101146

Tölvupóstur Sævars Freys Þráinssonar dags. 14.1.2011 þar sem óskað er eftir 130 þús. kr. niðurfellingu vegna húsaleigu.

Framkvæmdaráð samþykkir erindið.

3.Búfjáreftirlit 2011

1101195

Samningur við Búnaðarsamband Vesturlands um forðagæslueftirlit á árinu 2011. Um er að ræða sambærilegan samning og gilt hefur undanfarin ár á milli aðila.

Framkvæmdaráð samþykkir samninginn.

4.Íþróttamiðstöð Jaðarsbökkum - starfshópur.

1012045

Fundargerð starfshóps dags. 17. janúar 2011.

Lögð fram.

5.Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana árið 2011

1009156

Sundurliðun viðhalds stofnana og tímaáætlun framkvæmda.

Lagt fram. Framkvæmdastjóra falið að senda bæjarráði gögnin til upplýsinga með vísan til 6 gr. erindisbréfs Framkvæmdaráðs.

6.Eignir Akraneskaupstaðar - Sláttuvél og hoppukastalar.

1009158

Tilboð í kaup á hoppiköstulum og sláttuvél.

Tilboð bárust frá eftirtöldum aðilum:

Skátaland, kt.: 620396-2499 kr. 585.500,- (staðgreiðsla)

Gísli Jónsson ehf kr. 301.000,- (staðgreiðsla)

Gísli Jónsson ehf kr. 521.000,- (gegn vinnuframlagi)

Skagastál kr. 415.000,- (staðgreiðsla)

Skagastál kr. 610.000,- (gegn vinnuframlagi)

Skagaverk ehf kr. 510.000,- (staðgreiðsla)

Skagaverk ehf kr. 710.000,- (gegn vinnuframlagi)

Framkvæmdaráð felur framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Skátaland.

7.Rekstur Akranesvallar og -hallar og æfingasvæðis að Jaðarsbökkum.

1010008

Erindi Knattspyrnufélags ÍA, þar sem óskað var eftir viðræðum um yfirtöku félagsins á rekstri Akranesvallar og Akraneshallar.

Framkvæmdastjóri og formaður gerði grein fyrir viðræðum við formann og framkvæmdastjóra KFÍA um málið. KFÍA mun senda inn gögn og upplýsingar til Framkvæmdaráðs ef félagið telur forsendur til frekari viðræðna um málið.

8.Verkefni í íþróttamannvirkjum

1101005

Minnisblað verkefnastjóra um skiptingu fjármuna vegna verkefna.

Lagt fram.

9.Breyting á stjórnskipulagi Akraneskaupstaðar

1012148

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar hafa orðið þær skipulagsbreytingar á stjórnkerfi Akraneskaupstaðar að framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu, Jón Pálmi Pálsson, sem starfað hefur sem slíkur frá stofnun stofunnar mun taka við starfi bæjarritara Akraneskaupstaðar og Þorvaldur Vestmann taka við starfi framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu jafnframt því að gegna starfi framkvæmdastjóra Skipulags- og umhverfisstofu.

Jón Pálmi færði núverandi og fyrrverandi framkvæmdaráði og starfsmönnum Framkvæmdastofu þakkir fyrir ánægjulegt og gott samstarf liðinna ára, jafnframt sem hann óskaði nýjum framkvæmdastjóra velfarnaðar í starfi.

Framkvæmdaráð þakkar Jóni Pálma fyrir vel unnin störf í þágu ráðsins og býður jafnframt Þorvald velkominn til starfa.

10.Vinnuskólinn - starfsskýrsla 2010

1101218

Starfsskýrsla vinnuskólans fyrir sumarið 2010.

Framkvæmdaráð þakkar fyrir afar ítarlega og upplýsandi skýrslu um rekstur vinnuskólans á árinu 2011.

11.Hundaleyfi - skrán.137

1009042

Framkvæmdastofa hefur verið í bréflegum samskiptum við hundaleyfishafa, Jónas Pál Þórláksson, vegna afturköllunar á hundaleyfi, sbr bréf dags. 13/12 og 22/12 2010 þar sem tilkynnt er um afturköllun hundaleyfis nr. 137. Umræddur Jónas hefur tilkynnt með tölvupósti að hann vilji nýta sér málskotsrétt til Framkvæmdaráð með tölvupósti dags. 25/1 2011, án þess að hafa sent nein frekari gögn varðandi málið.

Framkvæmdaráð staðfestir afturköllun hundaleyfis.

12.Útboð - sláttur á opnum svæðum.

1011129

Tilboð í slátt á opnum svæðum voru opnuð þriðjudaginn 1. febrúar 2011 og komu 11 tilboð í verkið.
Þau eru frá eftirtöldum aðilum:

1. Ingólfur Valdimarsson kr. 14.570.037,-

2. Gísli Jónsson ehf. kr. 14.919.774,-

3. Þróttur ehf. kr. 9.476.893,-

4. Gestur ehf. kr.12.124.033,-

5. BÓB sf. kr. 17.486.838,-

6. Innnesverk ehf. kr. 10.415.050,-

7. Innnesverk ehf. (frávikst) kr. 9.337.533,-

8. Brynjólfur Ottesen kr. 8.339.716,-

9. B.Ott ehf. kr.11.726.836,-

10.Garðlist ehf. kr. 8.782.864,-

11.Garðlist ehf. (frávikst.) kr. 7.989.846,-

Framkvæmdastjóra falið að fara yfir tilboðin og leggja niðurstöður fyrir næsta fund nefndarinnar.

Fundi slitið - kl. 18:20.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00