Fara í efni  

Framkvæmdaráð (2009-2014)

85. fundur 04. október 2012 kl. 18:00 - 17:15 í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Einar Benediktsson formaður
  • Gunnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Páll Jónsson aðalmaður
  • Sveinn Kristinsson varaformaður
Starfsmenn
  • Þorvaldur Vestmann framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu
Fundargerð ritaði: Þorvaldur Vestmann framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Vélaskemma fyrir golfklúbbinn

1005091

Bréf Golfkl. Leynis, dags. 17. sept. s.l.

Framkvæmdaráð samþykkir að bjóða fulltrúum golfklúbbsins til viðræðna á næsta fundi ráðsins.

2.Samningur um endurbyggingu æfingasvæðis á Jaðarsbökkum

1209180

Bréf Knattspyrnufélags ÍA, dags. 25. sept. 2012

Framkvæmdaráð samþykkir að bjóða bréfriturum til viðræðna á næsta fundi ráðsins.

3.Jólaskreytingar 2012 - framlag

1112150

Framkvæmdastjóri gerði ráðinu grein fyrir stöðunni.

4.Viðjuskógar 11 - 17, gangstétt

1209007

Verktakaval - kynning

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir verklagi við verktakaval en fram fór lokað útboð þar sem tilboð verða opnuð á morgun, þ. 5. okt.

5.Grundaskóli - húsnæðisskortur

1206029

Ræddar voru nauðsynlegar aðgerðir vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar nemenda á næstu árum svo og plássleysi í eldhúsi sem afleiðing af fjölgun í skólanum.

Framkvæmdastjóra falið að láta vinna frumáætlanir vegna hugsanlegrar stækkunar á matsal, kennslurými o.fl. og leggja fyrir næsta fund ráðsins.

Fundi slitið - kl. 17:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00