Fara í efni  

Fjölskylduráð (2009-2014)

134. fundur 18. febrúar 2014 kl. 16:30 - 18:45 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Dagný Jónsdóttir formaður
  • Þröstur Þór Ólafsson varaformaður
  • Sveinn Kristinsson aðalmaður
  • Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helga Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu
  • Svala Kristín Hreinsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir deildarstjóri
Dagskrá

1.Skóladagatal 2014-2015

1312004

Fyrir fundinum liggja drög að skóladagatali vegna næsta skólaárs. Gert er ráð fyrir að grunnskólarnir hefjist 22. ágúst og ljúki 9. júní 2015. Vetrarfrí verður dagana 16., 17. og 20. október 2014.

Á fundinn mættu Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla og Sigurður Arnar Sigurðsson aðstoðarskólastjóri Grundaskóla áheyrnafulltrúar skólastjórnenda, Elís Þór Sigurðsson og Borghildur Birgisdóttir áheyrnafulltrúi

Skóladagatal lagt fram. Skóladagatalið hefur verið lagt fyrir umsagnaraðila innan skólans og samþykkt.

Fjölskylduráð staðfestir skóladagatalið eins og það er lagt fyrir.

2.Námsmat í grunnskólum

1402066

Fram kemur í bréfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá 5. febrúar að ráðuneytið hefur frestað gildistöku nýs námsmats til vorsins 2016.

Lagt fram.

3.Ytra mat á grunnskólum - Brekkubæjarskóli

1302117

Skýrsla Námsmatsstofnunar var lögð fram á fundi fjölskylduráðs 15. október. Nú liggur fyrir umbótaáætlun unnin af starfsfólki skólans.

Fjölskylduráð hefur kynnt sér umbótaáætlunina og telur hana í samræmi við ábendingar í skýrslu um ytra mat. Fjölskylduráð óskar eftir framvinduskýrslu í lok skólaárs 2014.

4.Innleiðing nýrrar aðalnámskrá í grunnskólum Akraneskaupstaðar

1303205

Sigurður Arnar og Arnbjörg gerðu grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur verið í og er framundan við innleiðingu og endurskoðun skólanámskrár. Gert er ráð fyrir að drög að skólanámskrá liggi fyrir haustið 2014.

5.Innritun í grunnskóla haustið 2014

1402033

Verið er að ganga frá innritun nemenda sem byrja í grunnskólunum haustið 2014.

Svala Hreinsdóttir deildarstjóri gerði grein fyrir stöðunni en gert er ráð fyrir að 96 nemendur innritist í 1. bekk. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum verða 44 nemendur í Brekkubæjarskóla og 52 í Grundaskóla.

6.Nemendamál í grunnskóla jan 2014

1402003

Arnbjörg, Sigurður Arnar, Borghildur, Elís Þór og Svala viku af fundi kl. 17:15. Afgreiðsla trúnaðarmál.

7.Húsnæðismál feb. 2014

1402181

Svala mætti til fundar kl.17:30.

Helga Gunnarsdóttir lagði fram minnisblað um stöðu á biðlista eftir félagslegu húsnæði á Akranesi. Fjölskylduráð samþykkir að vísa umræðu um stöðu húsnæðismála til starfshóps um málefni félagsþjónustu þar sem skoðað verði hvernig skuli brugðist við til lengri tíma. Farið verði yfir stöðuna á Akranesi og til hvaða úrræða önnur sveitarfélög hafi gripið til. Starfshópurinn skili greinargerð um málið til fjölskylduráðs fyrir 1. maí.

8.Húsnæðismál- leiguíbúðir

1402204

Afgreiðsla trúnaðarmál.

9.Tómstundaframlag 2014

1402182

Fjölskylduráð vísar umræðum og úrfærslum um tómstundaframlag til starfshóps um æskulýðs- og íþróttamál.

Fundi slitið - kl. 18:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00