Fara í efni  

Fjölskylduráð (2009-2014)

128. fundur 19. nóvember 2013 kl. 16:30 - 18:10 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Dagný Jónsdóttir formaður
  • Þröstur Þór Ólafsson varaformaður
  • Sveinn Kristinsson aðalmaður
  • Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helga Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
  • Svala Kristín Hreinsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir verkefnisstjóri
Dagskrá

1.Gjaldskrá heimaþjónustu - tillaga

1211157

Tillaga að nýrri gjaldskrá var lögð fyrir á síðasta fundi. Afgreiðslu var frestað.

Laufey Jónsdóttir verkefnisstjóri heimaþjónustu og Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri mættu á fundinn kl. 16:30. Farið var yfir drög að gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu á Akranesi. Afgreiðslu frestað. Laufey vék af fundi kl. 17:00.

2.Málskotsnefnd

1303154

Fjölskylduráð ákvað á fundi sínum 2.04.13 að leggja til við bæjarráð að tímabundið verði stofnuð málskotsnefnd sem starfi til loka árs 2013. Verkefni nefndarinnar verði að fjalla um erindi sem berast á grundvelli reglna um fjárhagsaðstoð á Akranesi skv. 33. grein.

Fjölskylduráð leggur til við bæjarráð að málskotsnefnd starfi út árið 2014. Fjölskylduráð felur framkæmdastjóra fjölskyldusviðs að gera breytingar á reglum málskotsnefndar sem lúta að upplýsingagjöf til fjölskylduráðs.

3.Fjárhagsaðstoð 2014

1311087

Tölulegar upplýsingar um upphæð fjárhagsaðstoðar ýmissa sveitarfélaga lagðar fram. Ákvörðun um upphæð framfærslu frestað. Sveinborg vék af fundi kl. 17:50.

4.Vinabæjarboð til Noregs - Bamble

1310030

Borist hefur boð frá Bamble - vinabæ Akraness í Noregi. Ástæða fyrir boðinu eru hátíðarhöld í tengslum við 17. maí, en í Noregi er verið að fagna 200 ára grunnlovs dag. Boðið er að senda grunnskólanemendur.

Fjölskylduráð felur Helgu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs að þakka fyrir gott boð, en ekki verður hægt að þekkjast boðið að þessu sinni.

5.Keilufélag Akraness - endurnýjun á rekstrarsamningi

1304094

Akraneskaupstaður og Keilufélag Akraness gerðu með sér samning til fjögurra ára 2009-2013 og er það mat þeirra sem komu að gerð samningsins að hann hafi reynst báðum aðilum farsæll. Með fundarboðinu fylgja drög að nýjum samningi þar sem inntak samningsins er það sama og í fyrri samningi og gildistími er fjögur ár.

Sveinn Kristinsson vék af fundi á meðan afgreiðslu málsins stóð. Fjölskylduráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs til afgreiðslu.

6.Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2013

1311092

Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2013 verður haldinn 27. nóvember kl. 17:00. Verið er að undirbúa breytt fyrirkomulag sem gerir ráð fyrir meiri þátttöku bæjarfulltrúa.

Fjölskylduráð samþykkir þessa tímasetningu og væntir þess að bæjarfulltrúar geti mætt.

7.UMFÍ - samþykkt á 48. sambandsþingi

1311090

Bréf lagt fram frá Ungmennafélagi Íslands frá 48. sambandsþingi þess þar sem stjórn UMFÍ vill vekja hverja ungmenna- og íþróttafélög og sveitarfélög um land allt til að hvetja iðkendur og foreldra og forráðamenn til að ganga, hjóla eða taka strætó til og frá skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Fundi slitið - kl. 18:10.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00