Félagsmálaráð (2002-2008)
689. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 5. apríl 2005 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru:                   Ágústa Friðriksdóttir  
                                      Sigurður Arnar Sigurðsson
                                      Margrét Þóra Jónsdóttir
                                      Sæmundur Víglundsson
Varamaður:                    Sigurveig Stefánsdóttir
                                                                        
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir yfirfélagsráðgjafi sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1.      Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
2.      Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
3.      Landsfundur Jafnréttisnefnda sveitarfélaga haldinn á Akureyri 6.-7. maí 2005
Málið kynnt
4.      Umsögn um frumvarp til laga um atvinnuleysistryggingar, 174. mál, desemberuppbót. Verði frumvarpið að lögum munu þeir sem eiga bótarétt og fá greiddar bætur í desembermánuði eiga rétt á greiðslu sem svarar til 30% af þeirri fjárhæð sem þeir eiga rétt á samkvæmt ákvæðum laganna.
Félagsmálaráð Akraness styður þá breytingu á lögum um atvinnuleysisbætur að bótaþegar eigi rétt á 30% desemberuppbót.
5.      Fjölskyldustefna
Nefndarmenn komu með athugasemdir
Fundi slitið kl. 17:30
					
 
 



