Fara í efni  

Byggingarnefnd (2000-2006)

1297. fundur 10. maí 2005 kl. 17:00 - 18:30

1297. fundur byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, þriðjudaginn 10. maí 2005 kl. 17:00.


 

Mættir á fundi:         

Björn Guðmundsson, formaður

Ingþór Bergmann Þórhallsson

Helgi Ingólfsson

Guðmundur Magnússon

Auk þeirra voru mættir

Ágústa Hafdís Sigurþórsdóttir ritari, Halldór Jónsson varaslökkviliðsstjóri og Skúli Lýðsson byggingarfulltrúi.

 

1.

Húsverndunarsjóður, 2005

 

Mál nr. BN050009

 

410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi

Umsóknir um styrki úr Húsverndunarsjóði frá eftirtöldum aðilum lagðar fram ásamt umsögn forstöðumanns byggðasafns Akraness og nærsveita.

 

1 Bakkatún 20 Helgi Guðmundsson, Jóhanna Leópoldsdóttir
2 Kirkjubraut 21 Íris Arthursdóttir
3 Mánabraut 9 Hallveig Skúladóttir
4 Melteigur 16b Jakob Baldursson, Sandra Guðnadóttir
5 Skagabraut 41 Unnur Leifsdóttir
6 Suðurgata 28 Sigurbjörn Björnsson
7 Suðurgata 29 Rannveig Berthelsen; Finnbogi Andersen
8 Vesturgata 19

Ragna Halldórsdóttir, Harpa Hannesdóttir,

Hinrik Gíslason, Unnur Eygló Bjarnadóttir

9 Vesturgata 46

Guðmundur Már Þórisson,

María Edda Sverrisdóttir

10 Vesturgata 51 Valdimar Ólafsson
11 Vesturgata 66

Einar Engilbert Jóhannesson,

Anna Lilja Daníelsdóttir

12 Veturgata 73

Katrín Edda Snjólaugsdóttir,

Jón Guðmundsson

 

Þann 26.04.05 var málið rætt, en nefndin frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar.

 

Bókun byggingarnefndar:

Byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að styrkurinn verði veittur eigendum að Bakkatúni 20 og Vesturgötu 51.

 

Bakkatún 20: 

Þinglýstir eigendur eru Helgi Guðmundsson og Jóhanna G. Leópoldsdóttir.  Húsið er steinsteypt, kjallari, hæð og ris sem mun byggt 1930. Húsið er staðsett í einu af eldri hverfum Akraness við Lambhúsasund þar sem umhverfi og útlit skipta miklu máli.  Á þessu svæði voru fyrstu verslunarhúsin byggð og þar voru fyrstu bryggjunarnar gerðar.  Í næsta nágrenni er athafnasvæði skipasmíðastöðvar Þorgeirs & Ellerts og Skagans.  Undanfarin ár hefur mikið verið unnið við endurbætur og viðhald á þessu húsi. Sótt er um styrk úr Húsverndunarsjóði Akraneskaupstaðar vegna viðhalds og endurbóta á húsinu að utan.  Húsið er ekki staðsett við fjölfarna leið og því ekki mjög áberandi útávið en það stendur í einu af elstu hverfum Akraness þar sem mikið af eldri húsum hafa verið rifinn.  Húsið er reisulegt þar sem það stendur og með skemmtilegan arkitektúr og sker sig svolítið úr miðað við önnur hús í nágrenninu.  Safnið telur að húsið hafi byggingarsögulegt gildi fyrir Akranes og falli því undir hlutverk sjóðsins.

 

Nefndin leggur til að styrkurinn verði kr. 600.000,- og framkvæmdum verði lokið innan 30 mánuða


Vesturgata 51 (Vindhæli):

Þinglýstur eigandi Valdimar Ólafsson.

 

Um er að ræða húseignina Vesturgata 51, sem smíðað var af upphaflega eiganda þess Jóni Sigurðssyni árið 1913 og kallast Vindhæli.  Umsækjandi og eigandi er Valdimar Ólafsson.  Húsið er timburhús, hæð og ris með steyptum kjallara.  Samkvæmt umsókn er sótt um styrk úr sjóðnum varðandi endurbætur á ytra útliti kjallara.  Hús þetta er mjög reisulegt og vel uppgert, staðsett í gamla bæjarhlutanum við eina af aðalgötum bæjarins.  Nokkur hús í svipuðum byggingarstíl og frá svipuðum tíma eru enn til staðar hér í bæ.  Húsagerð þessi hefur verið mjög áberandi á vel flestum stöðum hér á landi og er ekki að undra þar eð þau eru mjög rúmgóð, ágætlega vel skipulögð og ekki síst tignarleg. Safnið mælir með umsókn.

 

Nefndin leggur til að styrkurinn verði kr. 400.000,- og framkvæmdum verði lokið innan 30 mánuða.

 

2.

Jaðarsbraut 5, staðfærðir uppdrættir

(000.852.20)

Mál nr. BN050049

 

300955-5259 Jón Óskar Ásmundsson, Jaðarsbraut 5, 300 Akranesi

Erindi Lárusar Ársælssonar kt. 200862-5119 verkfræðings fh. Jóns Óskarssonar vegna gerð reyndaruppdrátta af húsinu þar sem stuðst er við eldri fyrirliggjandi uppdrætti og nýja gerðum af Lárusi.

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 4. maí 2005.

 

3.

Laugarbraut 21, reyndarteikning

(000.863.05)

Mál nr. BN050043

 

200358-3929 Óskar Kristinsson, Akurgerði 9, 300 Akranesi

Erindi Lárusar Ársælssonar kt. 200862-5119 verkfræðings fh. Óskars  vegna gerð reyndaruppdrátta af húsinu og breyttum eignamörkum, þar sem stuðst er við eldri fyrirliggjandi uppdrætti og nýja gerðum af Lárusi.

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 4. maí 2005.

 

4.

Hagaflöt 7, nýtt 20 íbúða fjölbýlishús

(001.858.03)

Mál nr. BN050042

 

500602-3170 Stafna á milli ehf, Maríubaug 5, 113 Reykjavík

Umsókn Vignis Björnssonar kt. 150269-4749 fh. Stafna á milli ehf. um heimild til þess að reisa 20 íbúða fjölbýlishús á lóðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Páls Gunnlaugssonar kt. 210552-2199 arkitekts.

Stærð húss: 1.787,0 m2  -  5.191,4 m3

Gjöld kr:  5.831.591,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 3. maí 2005.

Bent er á skýrslu AV. hf. frá 1990 hvað varðar grundun hússins.

 

5.

Holtsflöt 9, nýtt 20 íbúða fjölbýlishús

(001.858.04)

Mál nr. BN050044

 

500602-3170 Stafna á milli ehf, Maríubaug 5, 113 Reykjavík

Umsókn Vignis Björnssonar kt. 150269-4749 fh. Stafna á milli ehf. um heimild til þess að reisa 20 íbúða fjölbýlishús á lóðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Páls Gunnlaugssonar kt. 210552-2199 arkitekts.

Stærð húss: 1.787,0 m2  -  5.191,4 m3

Gjöld kr:  5.831.591,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 3. maí 2005.

Bent er á skýrslu AV. hf. frá 1990 hvað varðar grundun hússins.

6.

Hólmaflöt 9, nýtt einbýlishús með bílgeymslu

(001.846.04)

Mál nr. BN050038

 

601101-3350 B.R. Hús ehf, Ásvallagötu 79, 101 Reykjavík

Umsókn Runólfs Þ. Sigurðssonar kt. 090157-2489 tæknifræðings fh. B.R. Húss ehf. um heimild til þess að reisa einbýlishús með bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Runólfs.

Stærð húss:  163,6 m2  -  563,2 m3

Stærð bílgeymslu: 35,5 m2  -  109,4 m3

Gjöld kr.:1.975.129,-

Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 4. maí 2005

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00